Pitt fær að hitta yngri börnin

Jolie/Pitt | 12. júlí 2024

Pitt fær að hitta yngri börnin

Leikarinn Brad Pitt fær að hitta yngri börnin sín en er í engu sambandi við eldri börnin. Pitt á sex börn með fyrrverandi eiginkonu sinni, leikkonunni Angelinu Jolie. 

Pitt fær að hitta yngri börnin

Jolie/Pitt | 12. júlí 2024

Maddox Jolie-Pitt, Vivienne Jolie-Pitt, Angelina Jolie, Knox Jolie-Pitt, Shiloh Jolie, …
Maddox Jolie-Pitt, Vivienne Jolie-Pitt, Angelina Jolie, Knox Jolie-Pitt, Shiloh Jolie, og Zahara Jolie-Pitt. Börnin eru aðallega með móður sinni. AFP

Leikarinn Brad Pitt fær að hitta yngri börnin sín en er í engu sambandi við eldri börnin. Pitt á sex börn með fyrrverandi eiginkonu sinni, leikkonunni Angelinu Jolie. 

Leikarinn Brad Pitt fær að hitta yngri börnin sín en er í engu sambandi við eldri börnin. Pitt á sex börn með fyrrverandi eiginkonu sinni, leikkonunni Angelinu Jolie. 

„Hann er í nákvæmlega engu sambandi við fullorðnu börnin. Samskipti hans við yngri börnin eru takmörkuð þar sem hann hefur verið í tökum undanfarna mánuði,“ sagði heimildarmaður People. Pitt hefur verið í tökum í Evrópu á kappakstursmyndinni F1. 

Í samkomulagi á milli hjónanna fyrrverandi kemur fram að Pitt eigi rétt á að umgangast börnin sín sem eru undir lögaldri. „Jolie er oftast með börnin en samkvæmt samkomulaginu hefur hann rétt til þess að heimsækja yngri börnin,“ segir heimildarmaðurinn. 

Nýlega ákvað hin 18 ára Shiloh að hætta að bera nafn föður síns en börnin hafa hingað til borið eftirnafnið Jolie-Pitt. Pitt veit af nafnabreytingunni og er sagður miður sín vegna þess. Er breytingin sögð minna hann á að hann hafi misst börnin frá sér. „Hann elskar börnin sín og saknar þeirra. Hann er mjög sorgmæddur,“ sagði heimildarmaður People í júní. 

Brad Pitt er lítið með börnum sínum.
Brad Pitt er lítið með börnum sínum. AFP/RUDY CAREZZEVOLI
mbl.is