Förðunarfræðingurinn Ragnheiður Júlíusdóttir og Arnar Snær Magnússon eiga von á sínu fyrsta barni saman.

Parið tilkynnti gleðitíðindin í sameiginlegri færslu á Instagram. Í færslunni birtu þau fallega mynd af hundinum Kaíu og sónarmynd með yfirskriftinni og greindu frá því að fjölskyldan myndi stækka í janúar á næsta ári.
Ragnheiður og Arnar hafa verið saman í yfir ellefu ár, en þau trúlofuðu sig í desember síðastliðnum.
Undanfarin ár hefur Ragnheiður verið að gera það gott í förðunarheiminum. Hún lauk diplómanámi hjá Make Up Studio Hörpu Kára árið 2019 og hefur síðan þá verið að farða fyrir ýmis tilefni auk þess að vera dugleg að deila myndböndum af fallegri förðun á samfélagsmiðlum sínum.
Fjölskylduvefur mbl.is óskar þeim innilega til hamingju!