Rakel Björk og Garðar orðin hjón

Brúðkaup | 12. júlí 2024

Rakel Björk og Garðar orðin hjón

Leik- og söngkonan Rakel Björk Björnsdóttir og tónlistarmaðurinn Garðar Borgþórsson eru orðin hjón. Parið gekk í það heilaga hjá sýslumanni í byrjun vikunnar og voru aðeins nánustu aðstandendur viðstaddir athöfnina. 

Rakel Björk og Garðar orðin hjón

Brúðkaup | 12. júlí 2024

Parið fagnaði ásamt sínum nánustu.
Parið fagnaði ásamt sínum nánustu. Skjáskot/Instagram

Leik- og söngkonan Rakel Björk Björnsdóttir og tónlistarmaðurinn Garðar Borgþórsson eru orðin hjón. Parið gekk í það heilaga hjá sýslumanni í byrjun vikunnar og voru aðeins nánustu aðstandendur viðstaddir athöfnina. 

Leik- og söngkonan Rakel Björk Björnsdóttir og tónlistarmaðurinn Garðar Borgþórsson eru orðin hjón. Parið gekk í það heilaga hjá sýslumanni í byrjun vikunnar og voru aðeins nánustu aðstandendur viðstaddir athöfnina. 

Rakel Björk greindi frá gleðitíðindunum á Instagram-reikningi sínum nýverið. 

„Yndislegur dagur með nánustu vinum og ættingjum.

Byrjuðum hjá sýslumanninum kl. 11:30 þar sem lögfræðingurinn hélt um stund að ég ætlaði að giftast pabba mínum. Kast! Þetta var stórkostleg upplifun þarna í Kópavoginum. Við erum með margar góðar sögur....en þetta var alveg í okkar anda.

Garðpartý, grill, söngur og sprell hófst um kl. 13. Síðan var ferðinni heitið út að borða í miðbæ Reykjavíkur með góðum vinum. Við brúðhjón gistum á hóteli og borðuðum morgunmat í sumarblíðunni. Einfalt, passlegt, fyndið og fullkomið,“ skrifaði Rakel Björk meðal annars við færsluna. 

Smartland óskar hjónunum hjartanlega til hamingju! 

mbl.is