Styttist í stöðvun strandveiða

Strandveiðar | 12. júlí 2024

Styttist í stöðvun strandveiða

Vísbendingar eru um að Fiskistofa mun stöðva strandveiðar í næstu viku, en óljóst er hvort síðasti veiðidagur verði miðvikudagur eða fimmtudagur.Eins og staðan er nú er aðeins 881 tonn eftir af 12 þúsund tonna þorskkvóta sem veiðunum hefur verið ráðstafað.

Styttist í stöðvun strandveiða

Strandveiðar | 12. júlí 2024

Það styttist óðum í að strandveiðutímabilinu ljúki enda eru starndveiðibátarnir …
Það styttist óðum í að strandveiðutímabilinu ljúki enda eru starndveiðibátarnir komnir langt með 12 þúsund tonna þorskkvóta sem veiðunum var ráðstafað. mbl.is/Þorgeir Baldursson

Vísbendingar eru um að Fiskistofa mun stöðva strandveiðar í næstu viku, en óljóst er hvort síðasti veiðidagur verði miðvikudagur eða fimmtudagur.Eins og staðan er nú er aðeins 881 tonn eftir af 12 þúsund tonna þorskkvóta sem veiðunum hefur verið ráðstafað.

Vísbendingar eru um að Fiskistofa mun stöðva strandveiðar í næstu viku, en óljóst er hvort síðasti veiðidagur verði miðvikudagur eða fimmtudagur.Eins og staðan er nú er aðeins 881 tonn eftir af 12 þúsund tonna þorskkvóta sem veiðunum hefur verið ráðstafað.

Í júlí hefur þorskaflinn hingað til verið um þúsund tonn á viku eða 257 tonn á dag og mun taka 3,4 daga að klára aflaheimildirnar verði aflinn eins í næstu viku. Þorskaflinn hefur hins vegar verið að meðaltali 285 tonn á strandveiðitímabilinu öllu sem hófst 2. maí og verði aflinn slíkur tekur 3,1 dag að klára heimildirnar.

Aðstæður til veiða verða góðar eftir helgi ef marka má veðurspá. Veðurstofan gerir ráð fyrir að á mánudag og þriðjudag verði hæg norðlæg eða breytileg átt og bjart með köflum, en sums staðar líkur á þoku eða súld við sjávarsíðuna. Á miðvikudag verður norðaustlæg átt með vætu víða um land.

Þá gerir sjólagsspá Vegagerðarinnar ráð fyrir fremur litlum öldugangi og sléttum sjó víða.

Með hagstæð skilyrði til sóknar og lítinn kvóta eftir er ekki ólíklegt að mikill fjöldi strandveiðibáta munu sækja sjóinn eftir helgi.

Entist lengur en í fyrra

Fari svo að strandveiðar verði stöðvaðar að loknum miðvikudegi 17. Júlí eða fimmtudegi 18. Júlí er ljóst að strandveiðar ársins entust aðeins lengur en í fyrra en ekki jafn lengi og 2022.Á síðasta ári voru strandveiðar stöðvaðar frá og með 12. júlí en frá og með 21. júlí sumarið 2022.

Þegar strandveiðikerfinu var komið á var stefnt að því að strandveiðibátar fengu að veiða 12 daga á mánuði frá maí til og með ágúst. Hafa strandveiðisjómenn krafist þess að veiðunum verði ráðstafað frekari aflaheimildum og lagt til að veiðidögum verði fækkað þannig að öllum verði tryggð veiði út tímabilið.

Þá hafa verið uppi raddir um að svæðisskipa strandveiðarnar þannig að ákveðið magn veiðiheimilda verði föst á ákveðnum svæðum eins og var þegar kerfinu var komið á, en mikil óeining er um slíka hugmynd og var frumvarp Svandísar Svavarsdóttur fyrrverandi matvælaráðherra ekki afgreitt á vorþingi síðasta árs.

mbl.is