119,9 milljóna parhús í 101 Reykjavík

Heimili | 13. júlí 2024

119,9 milljóna parhús í 101 Reykjavík

Við Ljósvallagötu í Reykjavík er að finna sjarmerandi parhús sem reist var árið 1926. Eignin telur alls 111 fm og er á tveimur hæðum. 

119,9 milljóna parhús í 101 Reykjavík

Heimili | 13. júlí 2024

Ásett verð er 119.900.000 krónur.
Ásett verð er 119.900.000 krónur. Samsett mynd

Við Ljósvallagötu í Reykjavík er að finna sjarmerandi parhús sem reist var árið 1926. Eignin telur alls 111 fm og er á tveimur hæðum. 

Við Ljósvallagötu í Reykjavík er að finna sjarmerandi parhús sem reist var árið 1926. Eignin telur alls 111 fm og er á tveimur hæðum. 

Húsið hefur hlotið heilmiklar endurbætur og verið innréttað á fallegan máta. Gengið er inn í eignina á neðri hæð, en þar er að finna tvö svefnherbergi, sjónvarpshol og baðherbergi. 

Aðkoman að húsinu er afar sjarmerandi.
Aðkoman að húsinu er afar sjarmerandi. Ljósmynd/Af fasteignavef mbl.is
Hið klassíska hillukerfi frá String prýðir efri hæðina.
Hið klassíska hillukerfi frá String prýðir efri hæðina. Ljósmynd/Af fasteignavef mbl.is

Sjarmerandi gluggar og falleg málverk

Á efri hæð má finna eldhús, stofu og borðstofu í opnu og björtu alrými. Eldhúsinnréttingin er ljós með góðu skápa- og vinnuplássi, en á borðunum er flottur marmari sem setur svip sinn á rýmið. 

Í stofu og borðstofu ráða fallegir og mildir litatónar ríkjum. Stórt málverk við borðstofuborðið grípur strax augað og gefur rýminu mikinn glæsibrag ásamt fallegum gluggum og parketi með fiskbeinamynstri. 

Sjá á fasteignavef mbl.is: Ljósvallagata 26

Eldhúsið er stílhreint með flottri lýsingu.
Eldhúsið er stílhreint með flottri lýsingu. Ljósmynd/Af fasteignavef mbl.is
Stórt málverk í stofunni setur án efa punktinn yfir i-ið.
Stórt málverk í stofunni setur án efa punktinn yfir i-ið. Ljósmynd/Af fasteignavef mbl.is
mbl.is