Bandaríska alríkislögreglan hefur nafngreint manninn sem gerði skotárás á kosningafundi Donald Trumps í Pennsylvaníuríki.

Hann heitir Thomas Matthew Crooks og var 20 ára gamall frá Bethel Park í Pennsylvaníu. Samkvæmt miðlum vestanhafs var hann vopnaður AR-15 hálfsjálfvirkum riffli.
Að sögn leyniþjónustunnar skaut Crooks nokkrum skotum að sviðinu þar sem Trump stóð áður en hann var „tekinn úr umferð“ af fulltrúum öryggisþjónustunni.
Crooks og einn gestur á fundinum létust í árásinni. Tveir eru alvarlega særðir.
Tvö vitni segjast hafa séð látinn mann með skotsár á höfði.
Fjöldi vitna segjast hafa séð Crooks áður en hann hleypti af skotum og látið yfirvöld vita.
Ryan Knight, stuðningsmaður Trumps, sagðist hafa séð Crooks á byggingu nærri fundinum.
„Þegar ég sat á fundinum sagði maður: „Ó guð, hann var með byssu,“ sagði Knight við blaðamenn.
Lögregla á svæðinu greindi frá því að hún hefði brugðist við „fjölda tilkynninga um grunsamlegt athæfi“, en gaf ekki nánari skýringu.