Markaðsfræðingurinn, áhrifavaldurinn og tískuáhugakonan, Sigríður Margrét Ágústsdóttir vinnur við að framleiða markaðsefni fyrir samfélagsmiðla. Hún blandar saman fullkomlega töff en glæsilegum flíkum í fatastíl sínum.
Markaðsfræðingurinn, áhrifavaldurinn og tískuáhugakonan, Sigríður Margrét Ágústsdóttir vinnur við að framleiða markaðsefni fyrir samfélagsmiðla. Hún blandar saman fullkomlega töff en glæsilegum flíkum í fatastíl sínum.
Markaðsfræðingurinn, áhrifavaldurinn og tískuáhugakonan, Sigríður Margrét Ágústsdóttir vinnur við að framleiða markaðsefni fyrir samfélagsmiðla. Hún blandar saman fullkomlega töff en glæsilegum flíkum í fatastíl sínum.
Sigríður er mikill tískuunnandi en hún er með B.A. gráðu í vörumerkjahönnun frá Copenhagen School of Design and Technology og lauk meistaranámi í markaðsfræði við Háskólann í Reykjavík fyrir rúmlega ári síðan. Hún deilir tískuástríðunni með kærasta sínum Guðmundi Ragnarssyni, sem er með B.A. gráðu í fatahönnun frá Listaháskóla Íslands. Sigríður segir að hún kaupi föt og fylgihluti mest á nytjamörkuðum því þar sé oft að finna muni sem eru alveg einstakir og geymi jafnvel áhugaverða sögu. Að fara á nytjamarkað getur því oft verið eins og að fara í fjársjóðsleit.
Hvernig myndir þú lýsa fatastílnum þínum?
„Ég myndi segja að ég sé með fjölbreyttan stíl og elska að prófa nýja hluti. Ég versla mikið á nytjamörkuðum og tengi það síðan saman við minn eigin kvenlega blæ.“
Hvernig klæðir þú þig dags daglega?
„Það fer eftir því í hvernig skapi ég er! Mér finnst gaman að vera vel til höfð og fín en ef það er mikið að gera hjá mér og hef lítinn tíma á morgnana, þá vel ég oft bara góðar gallabuxur og einfaldan stuttermabol eða peysu við. Ég vel samt yfirleitt góða tösku, skart eða sólgleraugu til að „spice things up.“
En þegar þú ert að fara eitthvað fínt?
„Aukahlutir eins og fallegar töskur og skart finnst mér setja punktinn yfir „i-ið“ þegar ég er að fara eitthvað fínt. Ég versla mikið notaðar töskur og skart, því það er alltaf svo einstakt og bera jafnvel einhverja sögu á bakvið sig.“
Fyrir hverju fellur þú oftast?
„Ég fell langt oftast fyrir vönduðum og einstökum töskum.“
Bestu fatakaupin og af hverju?
„Antik hálsmen sem ég keypti á nytjamarkaði á Alicante í fyrra á 1 Evru. Ég hef ég notað það mikið síðan þá og finnst það mjög einstakt og fallegt.“
Verstu fatakaupin og af hverju?
„Balenciaga-strigaskór sem ég keypti fyrir nokkrum árum. Þeir eru bara merkið og ekkert annað. Ég er að selja þá inn á Regn, ef einhver hefur áhuga,“ segir hún og hlær.
Uppáhaldsskór/fylgihlutir?
„Chimi-sólgerlaugun mín sem ég keypti í Andrá. Þau eru klassísk og passa vel við allt, þau fylgja mér eiginlega hvert sem ég fer.“
Áttu þér uppáhaldsmerki/búðir til að versla í?
„Uppáhaldsmerkin mín í augnablikinu er Saks Potts, Paloma Wool, GANNI og Jacquemus þetta eru öll ótrúlega áhugaverð og vönduð merki. Merki sem eru að gera eitthvað nýtt og sem gaman er að fylgjast með bæði í hönnun og markaðsmálum.“
Áttu þér uppáhaldsliti?
„Í augnablikinu er ég mjög hrifin af brúnum bæði í fatnaði og förðun. Ég er með græn augu, og brúnn passar því mjög vel við mig. Mér finnst mikilvægt að vita hvað hentar manni best og hvað það er sem lætur manni líða vel í eigin skinni.“
Hvað er á óskalistanum þínum fyrir sumarið?
„Taska frá spænska merkinu, Gimaguas.“
Hvaðan sækir þú innblástur þegar þú setur saman dress?
„Ég fæ innblástur frá fólkinu í kringum mig, sem hefur mismunandi og einstaka stíla. Einnig fæ ég mikinn innblástur í gegnum samfélagsmiðla eins og Pinterest, það eru margar hugmyndir sem spretta þar upp. Á Pinterest vista ég albúm fyrir hverja árstíð og tilefni, sem auðveldar mér svolítið lífið.“
Ef peningar væru ekki vandamál, hvað myndir þú kaupa þér?
„Mig hefur lengi langað í fallegt „vintage“ Cartier-úr.“
Hver finnst þér vera best klæddi einstaklingurinn allra tíma?
„Fyrsta manneskjan sem mér datt í hug er Díana prinsessa. Hún hafði ótrúlegan, einstakan og fallegan stíl. Hún var einstaklega glæsileg og góðhjörtuð, sem skein í gegn.“
Eitthvað í lokin sem þú villt bæta við varðandi sumartískuna?
„Ég mæli með að kíkja í skápinn hjá mömmu þinni, ömmu, frænku eða vinkonu og fá eitthvað fallegt í láni fyrir sumarið í stað þess að kaupa alltaf eitthvað nýtt! Ég fann þetta fallega pils í skápnum hennar mömmu, það er örugglega meira en 30 ára gamalt og ég fæ það oft í láni.“