„Þetta var skrímsli“

„Þetta var skrímsli“

„Þetta var skrímsli sem sá eiginmann minn sem ómannlega pólitíska vél og reyndi að kæfa ástríðu hans, hlátur, hugvit, ást á tónlist og innblástur,“ sagði fyrrverandi forsetafrúin Melania Trump í yfirlýsingu sem hún deildi á X um skotárásina á Trump í gær.

„Þetta var skrímsli“

Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseti | 14. júlí 2024

Melania Trump gaf út yfirlýsingu um skotárásina á Donald Trump …
Melania Trump gaf út yfirlýsingu um skotárásina á Donald Trump í gær. AFP

„Þetta var skrímsli sem sá eiginmann minn sem ómannlega pólitíska vél og reyndi að kæfa ástríðu hans, hlátur, hugvit, ást á tónlist og innblástur,“ sagði fyrrverandi forsetafrúin Melania Trump í yfirlýsingu sem hún deildi á X um skotárásina á Trump í gær.

„Þetta var skrímsli sem sá eiginmann minn sem ómannlega pólitíska vél og reyndi að kæfa ástríðu hans, hlátur, hugvit, ást á tónlist og innblástur,“ sagði fyrrverandi forsetafrúin Melania Trump í yfirlýsingu sem hún deildi á X um skotárásina á Trump í gær.

Í yfirlýsingunni þakkaði hún öryggisþjónustu- og lögreglumönnum sem hættu lífi sínu til að vernda Trump.

Þá sendi hún samúðarkveðjur til fjölskyldna fórnarlamba árásarinnar.

Ekki hluti af kosningabaráttunni

Melania Trump hefur varla tekið þátt í kosningabaráttu eiginmanns síns og hefur hvorki sést á kosningafundum né opinberum atburðum. 

Trump kveðst heill af húfi eftir skotárásina þrátt fyrir að byssukúlan hafi farið í eyra hans. 

mbl.is