Ástrós naut lífsins í höfuðborg Portúgals

Fatastíllinn | 15. júlí 2024

Ástrós naut lífsins í höfuðborg Portúgals

Áhrifavaldurinn og hlaðvarpsstjórnandinn Ástrós Traustadóttir heimsótti nýverið höfuðborg Portúgals, Lissabon, þar sem hún naut sín í botn. 

Ástrós naut lífsins í höfuðborg Portúgals

Fatastíllinn | 15. júlí 2024

Ástrós Traustadóttir birti fallegar tískumyndir frá ferðalagi sínu til Lissabon!
Ástrós Traustadóttir birti fallegar tískumyndir frá ferðalagi sínu til Lissabon! Samsett mynd

Áhrifavaldurinn og hlaðvarpsstjórnandinn Ástrós Traustadóttir heimsótti nýverið höfuðborg Portúgals, Lissabon, þar sem hún naut sín í botn. 

Áhrifavaldurinn og hlaðvarpsstjórnandinn Ástrós Traustadóttir heimsótti nýverið höfuðborg Portúgals, Lissabon, þar sem hún naut sín í botn. 

Ástrós heldur úti hlaðvarpinu Mömmulífið ásamt vinkonu sinni Guðrúnu Sørtveit, en hún fer einnig með hlutverk í raunveruleikaþáttunum LXS þar sem fylgst er með nokkrum af vinsælustu áhrifavöldum landsins. 

Breytti götum Lissabon í tískupall

Ástrós er einnig mikill tískuunnandi og heldur úti vinsælum Instagram-reikningi þar sem hún deilir meðal annars hugmyndum af flottum dressum með fylgjendum sínum. 

Í ferðinni nýtti Ástrós fegurðina í Lissabon til hins ýtrasta og var dugleg að deila tískumyndum með undurfögrum bakgrunni með fylgjendum sínum. 





mbl.is