Samfélagsmiðlastjarnan Bella Thomson, betur þekkt undir nafninu Bella Brave, er látin tíu ára að aldri.

Thomson vakti mikla athygli á samfélagsmiðlasíðunni TikTok en þar sagði hún meðal annars frá baráttu sinni við Hirschprung-sjúkdóminn. Hún heillaði netverja upp úr skónum með jákvæðni sinni, hreinskilni og lífsgleði.
Kyla Thomson, móðir stúlkunnar, greindi frá andláti dóttur sinnar á samfélagsmiðlum fyrr í dag. Stúlkan lést friðsamlega í faðmi fjölskyldunnar í gær, sunnudaginn 14. júlí. Hún lést vegna sýkingar í lungum.