Eddie Murphy kvæntist ástinni sinni

Ást í Hollywood | 15. júlí 2024

Eddie Murphy kvæntist ástinni sinni

Bandaríski leikarinn Eddie Murphy og unnusta hans, ástralska fyrirsætan Paige Butcher, gengu í hjónaband á eyjunni Anguilla á þriðjudag. Parið fagnaði ástinni í faðmi nánustu vina og ættingja að því er fram kemur á vef People. Murphy og Butcher trúlofuðu sig árið 2018. 

Eddie Murphy kvæntist ástinni sinni

Ást í Hollywood | 15. júlí 2024

Eddie Murphy gekk í það heilaga á eyjunni Anguilla í …
Eddie Murphy gekk í það heilaga á eyjunni Anguilla í Karíbahafi á þriðjudag. LUCAS JACKSON

Bandaríski leikarinn Eddie Murphy og unnusta hans, ástralska fyrirsætan Paige Butcher, gengu í hjónaband á eyjunni Anguilla á þriðjudag. Parið fagnaði ástinni í faðmi nánustu vina og ættingja að því er fram kemur á vef People. Murphy og Butcher trúlofuðu sig árið 2018. 

Bandaríski leikarinn Eddie Murphy og unnusta hans, ástralska fyrirsætan Paige Butcher, gengu í hjónaband á eyjunni Anguilla á þriðjudag. Parið fagnaði ástinni í faðmi nánustu vina og ættingja að því er fram kemur á vef People. Murphy og Butcher trúlofuðu sig árið 2018. 

Murphy, best þekktur fyrir leik sinn í gamanmyndum á við Coming to America, Beverly Hills Cop, The Nutty Professor og Shrek, kynntist Butcher á tökusetti kvikmyndarinnar Big Momma's House 2 árið 2006. Ástralska fyrirsætan fór með smáhlutverk í þeirri kvikmynd.

Er þetta annað hjónaband leikarans en hann var giftur Nicole Mitchell Murphy á árunum 1993 til 2006. 

Murphy á tíu börn með fimm konum. Börnin, sex dætur og fjórir synir, eru á aldrinum 5 til 35 ára. Fyrsta barn leikarans fæddist árið 1989, sonur að nafni Eric Murphy, en sá er 29 árum eldri en yngsta systkini sitt, Max Charles Murphy, sem fæddist í nóvember 2018. Tvö yngstu börnin á Murphy með Butcher. 

mbl.is