Hafði afskipti af Crooks sekúndum fyrir árásina

Hafði afskipti af Crooks sekúndum fyrir árásina

Lögregluþjónn hafði afskipti af árásarmanninum í bænum Butler aðeins örfáum sekúndum áður en hann reyndi að ráða Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta til bana, samkvæmt heimildum AP.

Hafði afskipti af Crooks sekúndum fyrir árásina

Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseti | 15. júlí 2024

Byssukúlan fór í gegnum eyrað á Trump.
Byssukúlan fór í gegnum eyrað á Trump. AFP

Lögregluþjónn hafði afskipti af árásarmanninum í bænum Butler aðeins örfáum sekúndum áður en hann reyndi að ráða Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta til bana, samkvæmt heimildum AP.

Lögregluþjónn hafði afskipti af árásarmanninum í bænum Butler aðeins örfáum sekúndum áður en hann reyndi að ráða Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta til bana, samkvæmt heimildum AP.

Hinn tvítugi Thomas Matthew Crooks skaut að Don­ald Trump á kosn­inga­fundi hans í ríkinu Penn­sylvan­íu í fyrradag, að sögn alríkislögreglu Bandaríkjanna, FBI. Trump særðist og einn lést í árás­inni auk þess sem árás­armaður­inn var felld­ur. Tveir fundargerstir særðust alvarlega.

Skömmu áður en skothvellirnir heyrðust tóku fundargestir eftir manni klifra upp á þak í nágrenni við kosningafundinn, að sögn tveggja lögreglumanna sem AP ræddi við.

Beindi byssunni að lögreglumanni

Einn lögreglumaður mun hafa klifrað upp á þakið og rekist á Crooks, sem síðan beindi hríðskotariffli sínum í átt að lögreglumanninum, að sögn AP.

Lögregluþjónninn hörfaði þá niður stigann en einmitt þá skaut Crooks í átt að Trump, að sögn lögreglumannanna sem óskuðu eftir nafnleynd.

Síðan var árásarmaðurinn felldur af skyttu bandarísku öryggisþjónustunnar en þá hafði hann þegar myrt einn fundargest, hinn 50 ára Cor­ey Com­peratore sem var slökkviliðsmaður og læt­ur eft­ir sig tvö börn.

Sprengjur í bíl árásarmannsins 

Sömu lögreglumenn segja einnig að sprengiefni hafi fundist í bíl Crooks og á heimili hans, en fleiri fjölmiðlar hafa þegar greint frá því.

Rannsóknarlögreglumenn telja að hríðskotariffillinn sé í eigu föður Crooks, keyptur fyrir að minnsta kosti hálfu ári.

Samkvæmt fjölmiðlaumfjöllun vestanhafs er enn óljóst hvers vegna Crooks framdi ódæðið.

Hann var skráður sem kjós­andi Re­públi­kana­flokks­ins en sam­kvæmt op­in­ber­um gögn­um gaf Crooks sam­tök­um sem styðja Demó­krata­flokkinn 15 doll­ara, eða um tvö þúsund krón­ur, í janú­ar árið 2021.

mbl.is