Instagram: Leitin mikla að sumrinu!

Instagram | 15. júlí 2024

Instagram: Leitin mikla að sumrinu!

Vikan var sólrík og sumarleg á Instagram að þessu sinni þrátt fyrir gular veðurviðvaranir. Landinn virðist hafa reynt eftir bestu getu að koma sér í burtu frá rigningunni og rokinu á höfuðborgarsvæðinu í leit að sumrinu. Einhverjir fundu sumarið fyrir utan landsteinana á meðan aðrir héldu í ferðalag á norður- og austurhluta landsins þar sem tjaldsvæði fylltust á núll einni.

Instagram: Leitin mikla að sumrinu!

Instagram | 15. júlí 2024

Vikan var sumarleg á Instagram þrátt fyrir rok og rigningu …
Vikan var sumarleg á Instagram þrátt fyrir rok og rigningu á höfuðborgarsvæðinu! Samsett mynd

Vikan var sólrík og sumarleg á Instagram að þessu sinni þrátt fyrir gular veðurviðvaranir. Landinn virðist hafa reynt eftir bestu getu að koma sér í burtu frá rigningunni og rokinu á höfuðborgarsvæðinu í leit að sumrinu. Einhverjir fundu sumarið fyrir utan landsteinana á meðan aðrir héldu í ferðalag á norður- og austurhluta landsins þar sem tjaldsvæði fylltust á núll einni.

Vikan var sólrík og sumarleg á Instagram að þessu sinni þrátt fyrir gular veðurviðvaranir. Landinn virðist hafa reynt eftir bestu getu að koma sér í burtu frá rigningunni og rokinu á höfuðborgarsvæðinu í leit að sumrinu. Einhverjir fundu sumarið fyrir utan landsteinana á meðan aðrir héldu í ferðalag á norður- og austurhluta landsins þar sem tjaldsvæði fylltust á núll einni.

Ljúft á ströndinni!

Lífið er ljúft hjá áhrifavaldinum Brynhildi Gunnlaugsdóttur, en hún hefur notið sólarinnar í Króatíu undanfarnar vikur. 

Nýjasta ofurparið fagnaði ástinni!

Körfuboltastjarnan Kristófer Acox og markadrottningin Guðrún Elísabet Björgvinsdóttir fögnuðu ástinni saman.

Fundu sumarið fyrir norðan!

Birgitta Líf Björnsdóttir, áhrifavaldur og markaðsstjóri World Class, og sonur hennar Birnir Boði fundu sumarið á Akureyri. Þau hafa verið dugleg að elta sólina síðustu mánuði.

Sumarnótt við Jökulsárlón!

Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Rúrik Gíslason upplifði stórkostlegt sjónarspil sumarnæturinnar við Jökulsárlón. 

Hlaupaveisla!

Förðunarfræðingurinn Rakel María Hjaltadóttir var ein þeirra sem hljóp Laugaveginn um helgina. Hún segir hlaupið hafa verið mikið ævintýri!

Á Ólympíuslóðum!

Áhrifavaldurinn Lára Clausen hefur spókað sig um Parísarborg í Frakklandi undanfarna daga, en þar verða Ólympíuleikarnir haldnir í ár. 

Leitin mikla að sumrinu!

Tískubloggarinn Elísabet Gunnarsdóttir var ein þeirra sem leitaði að sumrinu um helgina.

Gyðja á Grikklandi!

TikTok-stjarnan og förðunarsnillingurinn Embla Wigum naut lífsins á Grikklandi í góðum félagsskap. 

Meiri hlaupaveisla!

Birna María Másdóttir, viðskiptastjóri hjá Brandenburg auglýsingastofu, tók líka þátt í Laugavegshlaupinu um helgina og náði sínu markmiði!

Brúðkaupsfín í Vestmannaeyjum!

Fann­ey Ingvars­dótt­ir, markaðsfull­trúi Bi­oef­fect og fyrr­ver­andi feg­urðardrottn­ing, klæddi sig upp fyrir brúðkaup í Vestmannaeyjum.

 Afmæli á ströndinni!

Leikkonan Stefanía Berndsen fagnaði 38 ára afmæli í síðustu viku. Hún varði deginum á ströndinni í Bandaríkjunum. 

Vestfirðirnir heilla!

Crossfit-stjarnan Sara Sigmundsdóttir nýtur þess að vera á Íslandi. Hún skoðaði sig um á Vestfjörðum á dögunum. 

Stuð á Kótelettunni!

Tónlistarkonan Birgitta Haukdal kom fram á Kótelettunni á Selfossi ásamt hljómsveitinni Írafár. 

Nýr ís!

Sunneva Eir Einarsdóttir og vinkona hennar Birta Líf Ólafsdóttir kynntu nýjan ís í síðustu viku. 

Njóta í London!

Fjölmiðlakonan Chanel Björk Sturludóttir býr um þessar mundir í London en sumarið þar fer henni einstaklega vel!

View this post on Instagram

A post shared by Chanel Björk (@chanelbjork)

Áhyggjulaus í sumarfríinu!

Áhrifavaldurinn Arn­ar Gauti Arn­ars­son­, bet­ur þekkt­ur sem Lil Cur­ly, var algjörlega áhyggjulaus í sólarlandafríi á dögunum með vinum sínum. Það nauðsynlegt að geta kúplað sig út! 

View this post on Instagram

A post shared by Lil Curly (@lilcurlyhaha)

mbl.is