Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, mun tilkynna hver verður varaforsetaefni hans í dag á landsfundi repúblikana.

Frá þessu greinir Fox News en Trump tjáði Bret Baier, þáttastjórnanda á Fox News, þetta fyrir skömmu.
Valið er talið standa á milli Doug Burgum, ríkisstjóra Norður-Dakóta, J.D. Vance, öldungadeildarþingmanns frá Ohio, og Marco Rubio, öldungadeildarþingmanns frá Flórída.
Þá koma aðrir til greina eins og til dæmis Tim Scott, öldungadeildarþingmaður frá Suður-Karólínu, og Glenn Youngkin, ríkisstjóri Virgínu.
Landsfundurinn hefst klukkan 17.45 að íslenskum tíma í dag og stendur yfir fram á fimmtudag.