Censori gæti endað á lista yfir kynferðisafbrotamenn

Poppkúltúr | 16. júlí 2024

Censori gæti endað á lista yfir kynferðisafbrotamenn

Bianca Censori, „eiginkona“ rapparans umdeilda Kanye West, gæti átt yfir höfði sér fangelsisdóm og háar sektir ásamt skráningu á lista yfir kynferðisafbrotamenn sökum nektar á almannafæri. 

Censori gæti endað á lista yfir kynferðisafbrotamenn

Poppkúltúr | 16. júlí 2024

Kanye West og Bianca Censori vekja eftirtekt hvar sem þau …
Kanye West og Bianca Censori vekja eftirtekt hvar sem þau eru.

Bianca Censori, „eiginkona“ rapparans umdeilda Kanye West, gæti átt yfir höfði sér fangelsisdóm og háar sektir ásamt skráningu á lista yfir kynferðisafbrotamenn sökum nektar á almannafæri. 

Bianca Censori, „eiginkona“ rapparans umdeilda Kanye West, gæti átt yfir höfði sér fangelsisdóm og háar sektir ásamt skráningu á lista yfir kynferðisafbrotamenn sökum nektar á almannafæri. 

Censori, sem er 29 ára og menntaður arkitekt, hefur valdið miklum usla með djörfum og ögrandi klæðaburði sínum síðustu vikur og mánuði enda ófeimin við að spóka sig um hálfnakin. 

Í gærdag sást til Censori á götum Los Angeles. Hún var fáklædd að vanda er hún hélt af stað í ljósatíma í stjörnuborginni. Censori var með brjóstin ber og samkvæmt lögum telst það til ósæmilegrar hegðunar á almannafæri. 

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem klæðaburður Censori ratar inn á borð lögreglunnar.

Síðasta sumar þegar Censori og West heimsóttu Feneyjar fékk lögreglan í borginni sendar ítrekaðar tilkynningar og kvartanir frá borgarbúum vegna ögrandi og efnislítils klæðnaðar Censori á almannafæri. Parið lét það þó ekki á sig fá og endurtók leikinn nú í júní er það heimsótti ítölsku borgina Prato. 

mbl.is