Mikið magn af rauðvínspóstum eftir helgar

Dagmál | 16. júlí 2024

Vefsíðan heilsuvera.is sem átti að auðvelda mjög samskipti milli heilbrigðiskerfisins og sjúklinga hefur ekki virkað sem skyldi. Tekið var fyrir tímapantanir í gegnum heilsuveru því í ljós kom að mikið brottfall var úr þeim tímum sem bókaðir voru með þeim hætti.

Margrét Ólafía Tómasdóttir formaður félags heimilislækna er gestur Dagmála í dag og ræðir þar um álagið á heilsugæsluna og þá stöðu sem glímt er við á hverjum degi.

Hún segir að enn sé verið að velta fyrir sér hvernig síðan og samskiptakerfið heilsuvera nýtist best.

Spurt var meðal annars um hvernig ætti að losna við …
Spurt var meðal annars um hvernig ætti að losna við ruslpóst og besta sjampóið fyrir hunda.

Erfið staða á sumrin

Skilaboðaþátturinn hefur verið takmarkaður því oft beið lækna mikið af „rauðvínsskilaboðum“ eftir helgar. Spurt var meðal annars um hvernig ætti að losna við ruslpóst og besta sjampóið fyrir hunda.

Í viðtalsbrotinu að ofan fer Margrét yfir þá kosti og galla sem heilsuvera hefur.

Hún ræðir einnig þá erfiðu stöðu sem upp kemur á sumrin þegar lágmarksmönnun er til staðar og jafnvel lokað fyrir tímapantanir hjá sumum heilsugæslustöðvum.

Þátturinn í heild sinni er aðgengilegur fyrir áskrifendur Morgunblaðsins.

mbl.is