Hefði farið á megrunarlyf

Kardashian | 17. júlí 2024

Hefði farið á megrunarlyf

Fyrir nokkrum árum grenntist raunveruleikastjarnan Khloé Kardashian mjög mikið. Áður en hún breytti um lífsstíl reyndi hún marga megrunarkúra en þó ekki þyngdarstjórnunarlyfið Ozempic. 

Hefði farið á megrunarlyf

Kardashian | 17. júlí 2024

Khloé Kardashian hefði prófað Ozempic hefði það verið í boði …
Khloé Kardashian hefði prófað Ozempic hefði það verið í boði á sínum tíma. AFP/Dimitrios Kambouris

Fyrir nokkrum árum grenntist raunveruleikastjarnan Khloé Kardashian mjög mikið. Áður en hún breytti um lífsstíl reyndi hún marga megrunarkúra en þó ekki þyngdarstjórnunarlyfið Ozempic. 

Fyrir nokkrum árum grenntist raunveruleikastjarnan Khloé Kardashian mjög mikið. Áður en hún breytti um lífsstíl reyndi hún marga megrunarkúra en þó ekki þyngdarstjórnunarlyfið Ozempic. 

„Ég hefði prófað Ozempic þegar ég var stærri. Ég hefði líklega prófað það af því ég prófaði allt annað,“ sagði Kardashian í nýjum þætt af The Kardashians að því fram kemur á vef Us Weekly. Lyfið var hins vegar ekki á markaði þegar hún leitaði lausna. „Ég prófaði alla tískukúra nema það sem virkaði og það var lífsstílsbreyting.“

Khloe Kardashian breytti um lífsstíl.
Khloe Kardashian breytti um lífsstíl. mbl.is/AFP

Er dugleg að æfa

Kardashian segir að lífsstílsbreyting sé lykillinn að árangri hennar. Hún gerir meðal annars æfingar þar sem hún gerir æfingar í ákveðinn tíma og slakar svo á. Þegar mikið liggur við eins og mikilvæg myndataka æfir hún enn meira en verðlaunar sig eftir á. „Ég fagna alltaf með stórri pizzu, bara með osti. Ég er týpan sem elskar barnamatseðilinn. Lífið snýst um jafnvægi.“

Raunveruleikastjarnan segir að lífið snúist ekki um ákveðna þyngd. Hún vill frekar hvetja fólk til þess að lifa heilbrigðu lífi og hreyfa sig reglulega. „Þú átt að vera heilbrigðari og sterkari fyrir sjálfan þig,“ sagði stjarnan. 

mbl.is