Áhorf á kvikmyndinni Hillbilly Elegy á streymisveitunni Netflix hefur aukist um 1.179% síðan að J.D. Vance var útnefndur varaforsetaefni Donalds Trumps forsetaframbjóðanda.

Árið 2016 gaf Vance út ævisöguna Hillbilly Elegy, lauslega þýtt á íslensku sem Harmljóð sveitalubbans, og vakti bókin mikla athygli á sínum tíma. Árið 2020 lét Netflix gera kvikmynd byggða á bókinni og Ron Howard leikstýrði.
Í dag er kvikmyndin í 6. sæti á vinsældarlistanum á Netflix í Bandaríkjunum. Íslendingar með áskrift að streymisveitunni Netflix geta einnig horft á kvikmyndina.
Á mánudag var J.D. Vance útnefndur varaforsetaefni Trumps og síðan þá hefur einnig sala á bókinni sjálfri aukist verulega.
Vance ólst upp við erfiðar aðstæður í stáliðnaðarbænum Middletown í Ohio. Móðir hans var fíkill og segir Vance að þegar vanrækslan hafi verið sem mest hafi hann sumpart alið sig upp sjálfur. Var það í 9. bekk, en í 10. bekk flutti hann til ömmu sinnar.
„Tölfræðin segir okkur að framtíðarhorfur hjá krökkum eins og mér eru ekki bjartar – að ef þeir eru heppnir komist þeir hjá því að lenda í velferðarkerfinu og ef þeir eru óheppnir þá deyi þeir af ofskammti af heróíni,“ skrifar Vance í bókinni.
Mikil fátækt var á heimili ömmu hans en hún gaf honum reiknivél og krafðist þess að hann stæði sig vel í skólanum.