Guðfræðingurinn og samfélagsmiðlastjarnan Erna Kristín Stefánsdóttir og eiginmaður hennar, Bassi Ólafsson trommuleikari rafpoppsveitarinnar Kiriyama Family, fagna sex ára brúðkaupsafmæli sínu í dag, fimmtudag. Sjötta árið er sykurbrúðkaup og er það ár tileinkað sætindum.

Erna Kristín, sem heldur úti Instagram-reikningnum Ernuland, birti fallegt myndskeið á samfélagsmiðlasíðunni í tilefni dagsins sem sýnir frá brúðkaupsdeginum.
Erna Kristín og Bassi, sem kynntust árið 2008, gengu í það heilaga við glæsilega athöfn á Ítalíu þann 18. júlí 2018, umkringd vinum og vandamönnum.
Í dag eru hjónin búsett í Danmörku ásamt börnum sínum.