Ráðast í viðgerðir þrátt fyrir viðvaranir

Eldvirkni á Reykjanesskaga | 18. júlí 2024

Ráðast í viðgerðir þrátt fyrir viðvaranir

Árni Þór Sigurðsson, formaður Grindavíkurnefndar stjórnvalda, segist vonast til að viðgerðir í bæjarfélaginu geti hafist sem fyrst.

Ráðast í viðgerðir þrátt fyrir viðvaranir

Eldvirkni á Reykjanesskaga | 18. júlí 2024

Horft yfir Grindavíkurbæ í janúar.
Horft yfir Grindavíkurbæ í janúar. mbl.is/Hörður Kristleifsson

Árni Þór Sigurðsson, formaður Grindavíkurnefndar stjórnvalda, segist vonast til að viðgerðir í bæjarfélaginu geti hafist sem fyrst.

Árni Þór Sigurðsson, formaður Grindavíkurnefndar stjórnvalda, segist vonast til að viðgerðir í bæjarfélaginu geti hafist sem fyrst.

Á sama tíma hefur Veðurstofan varað við auknum líkum á að eldgos komi upp innan bæjarmarkanna.

Í samtali við Morgunblaðið í dag segir Árni að ekki sé bara hægt að hætta við framkvæmdirnar þó ekki sé vitað hvenær umbrotunum í og við Grindavík ljúki.

Nefndin kynnti ríkisstjórninni aðgerðaáætlun í síðustu viku og segir Árni hana miða að því að auka öryggi í bænum.

„Hún felst fyrst og fremst í því aðráðast í viðgerðir á götum og stígum til þess að auka öryggi í bænum. Þetta eru viðgerðir á gatnakerfi, lögnum og öðrum samgönguleiðum. Síðan er líka gert ráð fyrir að girða af óöruggari svæði með tryggari hætti en gert er í dag,“ segir Árni Þór.

Frá Grindavík í janúar.
Frá Grindavík í janúar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Full ástæða til að hefjast handa

Spurður hvenær til standi að hefja framkvæmdir segir Árni: „Ég er nú að vonast til að það geti bara orðið mjög fljótlega.“

Hann reiknar með að nefndin fundi með þeim sem komi að málinu fyrir vikulok og að þá verði útbúin frekari tímaáætlun auk þess sem öryggismál verði rædd.

Spurður hvort tilkynning Veðurstofunnar um auknar líkur á gosi innan Grindavíkur setji ekki strik í reikninginn segir Árni:

„Það má kannski bæði segja já og nei, í okkar aðgerðaáætlun gerum við grein fyrir því að hættumatið sé að taka breytingum og við erum auðvitað með þann fyrirvara í áætluninni að ef náttúran tekur einhver völd með þeim afleiðingum að ekki sé hægt að halda áfram eða ráðast í framkvæmdir þá sé það svoleiðis.“

Nánari umfjöllun er að finna í Morgunblaðinu í dag.

mbl.is