Kaleo gefur út lag um skotárásir í Bandaríkjunum

Poppkúltúr | 19. júlí 2024

Kaleo gefur út lag um skotárásir í Bandaríkjunum

Íslenska rokkhljómsveitin Kaleo gaf í nótt út lagið USA Today, lag sem tekur á byssuárásum í Ameríku og ofbeldi tengdum skotvopnum. Lagið er gefið út í kjölfar skotárásarinnar á Donald Trump þar sem saklaus áhorfandi lét lífið. 

Kaleo gefur út lag um skotárásir í Bandaríkjunum

Poppkúltúr | 19. júlí 2024

KALEO er á hljómleikaferðalagi um Norður-Ameríku og Evrópur um þessar …
KALEO er á hljómleikaferðalagi um Norður-Ameríku og Evrópur um þessar mundir. Skjáskot/Instagram

Íslenska rokkhljómsveitin Kaleo gaf í nótt út lagið USA Today, lag sem tekur á byssuárásum í Ameríku og ofbeldi tengdum skotvopnum. Lagið er gefið út í kjölfar skotárásarinnar á Donald Trump þar sem saklaus áhorfandi lét lífið. 

Íslenska rokkhljómsveitin Kaleo gaf í nótt út lagið USA Today, lag sem tekur á byssuárásum í Ameríku og ofbeldi tengdum skotvopnum. Lagið er gefið út í kjölfar skotárásarinnar á Donald Trump þar sem saklaus áhorfandi lét lífið. 

Fyrir Kaleo þá er lagið ádeila á síendurteknar skotárásir sem eiga sér stað nánast daglega í Bandaríkjunum. Hljómsveitin mun gefa hluta af tekjum lagsins til samtakanna Everytown sem eru samtök sem berjast gegn skotrárásum og ofbeldi tengdum skotvopnum. 

„Þetta lag fangar þann hræðilega veruleika skotárása og ofbeldis sem við höfum upplifað undanfarinn áratug í Bandaríkjunum, landi þar sem við höfum búið og túrað. Þessar skotárásir hafa haft mikil áhrif á okkur alla. Nú síðast tilgangslaus skotárás í Pennsylvaníu-fylki þar sem saklaus maður lét lífið.

Við vonum að nú sé komið að breytingum og mikilvægar og nauðsynlegar breytingar verði gerðar á lögum um skotvopn í Bandaríkjunum. Hugur okkar er hjá fjölskyldu mannsins sem skotinn var til bana um helgina og allra annarra sem eiga um sárt að binda vegna tilgangslauss ofbeldis um heim allan,“ segir Jökull Júlíusson, söngvari, gítarleikari og lagahöfundur Kaleo. 



mbl.is