Fjölmiðlakonan Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og eiginmaður hennar, Haukur Ingi Guðnason sálfræðingur, flúðu rigninguna og vindhviðurnar sem hafa svo sannarlega ekki kætt höfuðborgarbúa undanfarna daga og drifu sig í útileigu.

Hjónin eltu sólina út á land ásamt börnum sínum fjórum og tjölduðu fyrsta fjölskyldutjaldinu.
Ragnhildur Steinunn deildi myndum úr ferðalaginu á Instagram-reikningi sínum og af myndum að dæma þá er fjölskyldan stödd í sólríkri náttúruparadís.
„Fyrsta tjaldið okkar (eftir langþráðan draum eiginmannsins). Sól, sykurpúðar og síkátir krakkar sem neita að fara heim, skrifaði hún við myndaseríuna.