Draumaeldhús í 127 fm íbúð í Vesturbænum

Heimili | 21. júlí 2024

Draumaeldhús í 127 fm íbúð í Vesturbænum

Við Hjarðarhaga í Vesturbæ Reykjavíkur er að finna afar sjarmerandi endaíbúð á efstu hæð í snyrtilegu fjölbýlishúsi sem reist var árið 1956. Eignin telur alls 127 fm og hefur verið innréttuð á fallegan máta. 

Draumaeldhús í 127 fm íbúð í Vesturbænum

Heimili | 21. júlí 2024

Eignin er á efstu hæð í fjölbýlishúsi sem reist var …
Eignin er á efstu hæð í fjölbýlishúsi sem reist var árið 1956. Samsett mynd

Við Hjarðarhaga í Vesturbæ Reykjavíkur er að finna afar sjarmerandi endaíbúð á efstu hæð í snyrtilegu fjölbýlishúsi sem reist var árið 1956. Eignin telur alls 127 fm og hefur verið innréttuð á fallegan máta. 

Við Hjarðarhaga í Vesturbæ Reykjavíkur er að finna afar sjarmerandi endaíbúð á efstu hæð í snyrtilegu fjölbýlishúsi sem reist var árið 1956. Eignin telur alls 127 fm og hefur verið innréttuð á fallegan máta. 

Eldhúsið grípur strax augað, en það er í opnu og björtu alrými ásamt borðstofu og stofu. Þar má sjá ljósa stílhreina innréttingu með góðu vinnu- og skápaplássi sem tónar fallega við fagurgulan lit sem prýðir veggi og loft rýmisins.

Falleg hönnun og mjúkir litir eru í forgrunni í eldhúsinu.
Falleg hönnun og mjúkir litir eru í forgrunni í eldhúsinu. Ljósmynd/Af fasteignavef mbl.is

Fagurgult eldhús og dönsk hönnun

Í eldhúsinu má einnig sjá flotta útfærslu á svokölluðum tækjaskáp sem fellur inn í innréttinguna og gefur rýminu skemmtilegan karakter. Fallegir hönnunarmunir prýða einnig rýmið, þar á meðal hið fallega Drop Chandelier Bulp-ljós frá 101 Copenhagen sem er innblásið af dönskum módernisma og setur svip sinn án efa á rýmið. 

Eignin státar af fjórum svefnherbergjum og einu baðherbergi. Ásett verð er 103.900.000 króna. 

Sjá á fasteignavef mbl.is: Hjarðarhagi 40

Eignin er björt með fallegum gluggum.
Eignin er björt með fallegum gluggum. Ljósmynd/Af fasteignavef mbl.is
Fjögur svefnherbergi og eitt baðherbergi prýða eignina.
Fjögur svefnherbergi og eitt baðherbergi prýða eignina. Ljósmynd/Af fasteignavef mbl.is
mbl.is