Hver er Kamala Harris?

Hver er Kamala Harris?

Kamala Harris, fyrsti svarti kvenkyns varaforseti í sögu Bandaríkjanna og af asískum uppruna, stefnir á að brjóta á ný blað í sögubókunum með því að vera fyrsti kvenkyns forseti í sögu Bandaríkjanna.

Hver er Kamala Harris?

Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2024 | 22. júlí 2024

Kamala Harris mun líklega verða forsetaframbjóðandi demókrata.
Kamala Harris mun líklega verða forsetaframbjóðandi demókrata. AFP/Jeff Kowalsky

Kamala Harris, fyrsti svarti kvenkyns varaforseti í sögu Bandaríkjanna og af asískum uppruna, stefnir á að brjóta á ný blað í sögubókunum með því að vera fyrsti kvenkyns forseti í sögu Bandaríkjanna.

Kamala Harris, fyrsti svarti kvenkyns varaforseti í sögu Bandaríkjanna og af asískum uppruna, stefnir á að brjóta á ný blað í sögubókunum með því að vera fyrsti kvenkyns forseti í sögu Bandaríkjanna.

Á sama tíma og Joe Biden Bandaríkjaforseti tilkynnti í gær að hann myndi ekki sækjast eftir endurkjöri, greindi hann frá því að hann styddi Kamölu Harris til að verða frambjóðandi demókrata.

„Það er minn heiður að hljóta stuðning for­set­ans og mín ætl­un er að hljóta þessa útnefningu,“ sagði Harris í til­kynn­ingu í gær.

Fátt virðist ætla að koma í veg fyr­ir að hún fái út­nefn­ingu Demó­krata­flokks­ins og mun hún því lík­lega mæta Don­ald Trump í for­seta­kosn­ing­un­um 5. nóv­em­ber.

Óvinsæll varaforseti

Sem vara­for­seti hef­ur hún þá átt erfitt með að skil­greina sig al­menni­lega og hef­ur verið gagn­rýnd fyr­ir slak­an ár­ang­ur í mál­efn­um sem henni var falið að vinna úr. Eru það mál eins og straum­ur ólög­legra inn­flytj­enda til Banda­ríkj­anna og að tryggja frek­ar kosn­inga­rétt fólks.

Margar milljónir ólöglegra innflytjenda hafa komið yfir landamærin frá Mexíkó og hafa hægrimenn sagt hana hafa klúðrað þessum málum. Á sama tíma urðu hörðustu vinstrimenn ósáttir við hana þegar hún sagði förufólkinu að „koma ekki“ til Bandaríkjanna.

Joe Biden hefur lýst yfir stuðningi við Kamölu Harris.
Joe Biden hefur lýst yfir stuðningi við Kamölu Harris. AFP/Mandel Ngan

Þá var hún fengin til að vinna með þinginu að því að koma frumvarpi í gegn sem sneri í kosningaréttindum fólks. Það frumvarp strandaði í þinginu.

Harris er óvenju óvin­sæll vara­for­seti. Sam­kvæmt FiveT­hirtyEig­ht eru 38,6% Banda­ríkja­manna sáttir við störf henn­ar á sama tíma og 50,4% Banda­ríkja­manna eru ósáttir við störf henn­ar.

Hokin af reynslu úr réttarkerfinu

Ólíkt Biden og öðrum forsetaframbjóðendum í sögunni þá er Harris þekkt vegna reynslu henn­ar af rétt­ar­kerf­inu, ekki á stjórn­mála­ferli sín­um eða laga­setn­ingu.

Harris fædd­ist 20. októ­ber 1964 í Oak­land í Kali­forn­íu. Hún lauk námi frá How­ard Uni­versity í Washingt­on-­ríki. Varð hún síðar sak­sókn­ari og síðar yf­ir­sak­sókn­ari í San Francisco og síðar rík­is­sak­sókn­ari í Kali­forn­íu árið 2010. Varð hún þar með fyrsti svarti rík­is­sak­sókn­ari rík­is­ins.

Árið 2016 bauð hún sig fram í öld­unga­deild­ina og hlaut braut­ar­gengi, en Harris varð önn­ur svarta kon­an til að vera kos­in í öld­unga­deild­ina frá upp­hafi. Árið 2017 tók hún til starfa í þinginu og vakti athygli fyrir beinskeyttar yfirheyrslur sínar yfir ráðamönnum í ríkisstjórn Trumps.

Harris á ætt­ir að rekja til Suður-Asíu, en móðir henn­ar kom sem inn­flytj­andi til Banda­ríkj­anna frá Indlandi árið 1958, en faðir henn­ar kom frá Jamaíku árið 1961.

Mynd af Kamölu Harris þegar hún var barn.
Mynd af Kamölu Harris þegar hún var barn. AFP

Lenti saman við Biden

Harris bauð sig fram í for­vali demó­krata fyr­ir síðustu for­seta­kosn­ing­ar, þar sem Biden var einn af mót­fram­bjóðendum henn­ar.

Lenti þeim meðal ann­ars sam­an í fyrstu kapp­ræðunum þar sem hún gagn­rýndi Biden fyr­ir and­stöðu sína á átt­unda ára­tugn­um við að samþykkja lög sem áttu að þvinga skóla til frek­ari aðlög­un­ar kynþátta.

Þrátt fyr­ir uppá­kom­una ákvað Biden að velja Harris sem vara­for­seta­efni sitt, en hún dró fram­boð sitt til baka sök­um lít­ils fylg­is.

Kamala Harris stefnir nú á Hvíta húsið.
Kamala Harris stefnir nú á Hvíta húsið. AFP/Samuel Corum

Mikill umhverfisverndarsinni

Harris er mik­ill um­hverf­is­vernd­arsinni og í for­val­inu hafði hún meðal ann­ars á stefnu sinni að banna berg­brot í leit að jarðefna­eldsneyti, sem oft­ast er kallað „frack­ing“.

Hún hef­ur verið öt­ull talsmaður fyr­ir því að kon­ur hafi aðgang að fóst­ur­eyðing­um og í fram­boði sínu var hún mót­fall­in því að halda skatta­lækk­un­um Don­alds Trumps frá ár­inu 2017. 

Það er ekki alltaf aug­ljóst hvar hún stend­ur í ákveðnum mál­um en hún hef­ur reynt að brúa bilið á milli vinst­ri­sinnuðustu fylk­inga flokks­ins við þær fylk­ing­ar sem eru næst miðjunni. Í sam­fé­lags­mál­um hef­ur hún þó verið með frjáls­lynd­ustu demó­kröt­un­um. 

Harris mynd­ar sér skoðanir eft­ir að hafa ígrundað mál ít­ar­lega og með hliðsjón af skoðana­könn­un­um, að sögn fólks sem hef­ur unnið með henni í gegn­um árin. Hef­ur hún þá verið treg til að styðja alltaf við yf­ir­grips­mikl­ar stefnu­breyt­ing­ar.

Saksóknari gegn sakfelldum manni

Frammistaða Harris sem sak­sókn­ari hef­ur á tíðum hjálpað henni í kosn­inga­bar­átt­um en einnig reynst henni illa.

Meðal þess sem var um­deilt hjá henni var hversu marg­ir voru sótt­ir til saka vegna neyslu maríjú­ana og stuðning­ur henn­ar við lög sem gerði rík­inu kleift að sækja for­eldra til saka ef börn þeirra misstu af of mörg­um skóla­dög­um.

Kamala Harris gæti orðið fyrsti kvenkyns forseti í sögu Bandaríkjanna.
Kamala Harris gæti orðið fyrsti kvenkyns forseti í sögu Bandaríkjanna. AFP/Saul Loeb

Frægt er þegar Tulsi Gabbard las henni pistilinn í kappræðum demókrata í forvalinu fyrir síðustu kosningar.

„Það eru of mörg dæmi til að nefna, en hún setti 1.500 manns í fangelsi fyrir brot á marijúanalögum og hló síðan að því þegar hún var spurð hvort hún hefði reykt marijúana. Hún kom í veg fyrir birtingu sönnunargagna sem hefðu frelsað saklausan mann frá dauðadómi þar til dómstólar neyddu hana til þess.

Hún hélt fólki í fangelsi umfram refsingu sína til að nota það sem ódýrt vinnuafl fyrir Kaliforníu-ríki. Það er engin afsökun fyrir því og fólkið sem varð fyrir því í þinni stjórn sem saksóknari, þú skuldar því afsökunarbeiðni,“ sagði Gabbard.

Harris átti erfitt uppdráttar eftir þessar kappræður.

Álits­gjaf­ar vest­an­hafs telja að Kamala Harris muni reyna að bera sam­an sinn fer­il sem sak­sókn­ari til margra ára við Don­ald Trump, sem var ný­lega sak­felld­ur og hef­ur verið tíður gest­ur í dóm­stól­um að und­an­förnu.

Tulsi Gabbard.
Tulsi Gabbard. AFP

Wall Street Journal

CNN

mbl.is