Mega gefa einkunnir í tölum, bókstöfum og litum

PISA 2022 | 22. júlí 2024

Mega gefa einkunnir í tölum, bókstöfum og litum

Það er undir hverjum grunnskóla komið hvers konar matskvarði er notaður til að mæla árangur nemenda í 1.-9. bekk. Við lok 10. bekkjar er loks öllum grunnskólum skylt að útskrifa nemendur með einkunnir á skalanum A til D, samkvæmt aðalnámskrá.

Mega gefa einkunnir í tölum, bókstöfum og litum

PISA 2022 | 22. júlí 2024

„Þegar barn klárar til dæmis 6. bekk þá fær það …
„Þegar barn klárar til dæmis 6. bekk þá fær það vitnisburð í bókstaf, lit, tölu eða umsögn,“ segir Auður. mbl.is/Hari

Það er undir hverjum grunnskóla komið hvers konar matskvarði er notaður til að mæla árangur nemenda í 1.-9. bekk. Við lok 10. bekkjar er loks öllum grunnskólum skylt að útskrifa nemendur með einkunnir á skalanum A til D, samkvæmt aðalnámskrá.

Það er undir hverjum grunnskóla komið hvers konar matskvarði er notaður til að mæla árangur nemenda í 1.-9. bekk. Við lok 10. bekkjar er loks öllum grunnskólum skylt að útskrifa nemendur með einkunnir á skalanum A til D, samkvæmt aðalnámskrá.

Þetta segir Auður Bára Ólafsdóttir, sérfræðingur í aðalnámskrá grunnskóla hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, spurð hvernig námsmati grunnskólanna sé háttað.

„Fyrir A, B og C eru sett matsviðmið sem eru lýsandi fyrir hvaða hæfni nemandi á að hafa náð tökum á við lok 10. bekkjar,“ segir Auður.

Mælingarnar þurfa að vera samræmdari

Hún segir aftur á móti að þetta þurfi ekki að eiga við um aðra árganga grunnskólanna.

„Þar skipuleggja skólar sjálfir hvort þeir nota 1-10 mælikvarða, umsagnir eða A, B, C og D,“ segir Auður.

Ómar Örn Magnús­son skóla­stjóri Haga­skóla segir í samtali við Morgunblaðið í dag að hann heyri frá for­eldr­um að þeim finnist þeir ekki fá nógu góðar upp­lýs­ing­ar um stöðu barna sinna í námi.

„Ef við ætl­um að nota þess­ar mæl­ing­ar þá þurfa þær að vera sam­ræmd­ari. Við eig­um að gera það mjög skýrt til hvers sé ætl­ast og hvaða ár­angri við ætl­um að ná,“ segir Ómar.

„Þetta er í mín­um huga of óljóst. Það er for­senda fyr­ir því að börn­um líði vel í námi, og geti náð tök­um á því, að þau viti til hvers sé ætl­ast af þeim.“

Skólum varð skylt að gefa útskriftarnemum einkunnir í formi bókstafa …
Skólum varð skylt að gefa útskriftarnemum einkunnir í formi bókstafa í stað tölustafa vorið 2016. mbl.is/Hari

Fær vitnisburð í bókstaf, lit, tölu eða umsögn

Spurð hvort skólarnir gætu samkvæmt gildandi reglum tekið upp litakerfi eða eitthvað þvíumlíkt við einkunnagjöf svarar Auður því játandi.

„Skólarnir verða hins vegar að gera grein fyrir því í skólanámskrá sinni hvaða matskvarði er notaður í skólanum, þannig að öllum megi vera ljóst hvaða matskvarði er notaður og fyrir hvað hann stendur,“ segir Auður.

„Þegar barn klárar til dæmis 6. bekk þá fær það vitnisburð í bókstaf, lit, tölu eða umsögn. Það er á ábyrgð skólans að skrá það í skólanámskrána sína og útskýra sinn matskvarða.“

Þar að auki má gefa barni vitnisburð í táknum.

Í takt við nágrannalönd

Skólum varð skylt að gefa útskriftarnemum einkunnir í formi bókstafa í stað tölustafa vorið 2016.

Breytingin var í samræmi við áætlanir í aðalnámskrá grunnskólanna frá 2011. Þá var hún jafnframt í takt við fyrirkomulag einkunnagjafar í nágrannalöndunum.

Eins og fyrr segir fylgir hverri einkunn lýsing eða svokallað matsviðmið.

Áttu lýsingarnar að samræma að hluta til einkunnagjöf milli skóla og gefa nemendum, foreldrum og viðtökuskólum betri upplýsingar en áður um hvað fælist í einkunnunum.

mbl.is