Nancy Pelosi, fyrrverandi forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, hefur lýst yfir stuðningi við Kamölu Harris sem forsetaframbjóðanda Demókrataflokksins. Pelosi er áhrifamikil innan flokksins og því um að ræða þýðingarmikinn stuðning fyrir Harris.

„Með miklu stolti og takmarkalausri bjartsýni fyrir framtíð landsins okkar, lýsi ég yfir stuðningi við Kamölu Harris varaforseta í embætti forseta Bandaríkjanna,“ tísti Pelosi.
„Ég hef fulla trúa á að hún muni leiða okkur til sigurs í nóvember.“
Á meðal þeirra sem hafa lýst yfir stuðningi við Harris eru Clinton-hjónin og Joe Biden Bandaríkjaforseti. Enn hefur þó ekki heyrst frá Barack Obama, fyrrverandi forseta.