Ragnhildur Steinunn og Haukur gift í sex ár

Brúðkaup | 22. júlí 2024

Ragnhildur Steinunn og Haukur gift í sex ár

Fjölmiðlakonan Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og eiginmaður hennar, Haukur Ingi Guðnason sálfræðingur, fagna því að í dag eru sex ár liðin frá því þau gengu í hjónaband.

Ragnhildur Steinunn og Haukur gift í sex ár

Brúðkaup | 22. júlí 2024

Fallegri brúðarmynd er varla hægt að hugsa sér. Ljósmyndarinn Íris …
Fallegri brúðarmynd er varla hægt að hugsa sér. Ljósmyndarinn Íris Dögg nær greinilega augnablikunum. Ljósmynd/Aðsend

Fjölmiðlakonan Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og eiginmaður hennar, Haukur Ingi Guðnason sálfræðingur, fagna því að í dag eru sex ár liðin frá því þau gengu í hjónaband.

Fjölmiðlakonan Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og eiginmaður hennar, Haukur Ingi Guðnason sálfræðingur, fagna því að í dag eru sex ár liðin frá því þau gengu í hjónaband.

Hjónin giftu sig við fallega athöfn í Verona á Ítalíu í júlí 2018, en þá höfðu þau verið par í yfir tuttugu ár og áttu saman tvö börn, Eldeyju og Jökul. Árið 2019 eignuðust hjónin svo tvíburana Tind og Storm sem fengu nöfnin sín á eins árs brúðkaupsafmæli hjónanna. 

Veisla með sama presti og sömu gestum ári síðar

Ragnhildur Steinunn birti fallega færslu á Instagram í tilefni dagsins þar sem hún deildi myndum frá deginum.

„Í dag eru 6 ár frá því ég giftist þessum gæja í Verona. Ári síðar, á sama degi, héldum við aðra athöfn með sama presti og sömu gestum þar sem leynigestirnir tveir, Tindur & Stormur, voru skírðir. Hlakka til að fagna þessum sykursæta degi með uppáhalds fólkinu mínu,“ skrifaði hún í færslunni. 

Smartland óskar þeim innilega til hamingju með brúðkaupsafmælið!

mbl.is