Lét taka af sér baugfingur fyrir Ólympíuleikana

Ólympíuleikarnir í París | 23. júlí 2024

Ástralski hokkíleikarinn Matthew Dawson puttabrotnaði rétt fyrir Ólympíuleikana í París og hefði getað misst af leikunum.

Ólympíuleikarnir fara fram í París í ár.
Ólympíuleikarnir fara fram í París í ár. AFP/Loic Venance

Ástralski hokkíleikarinn Matthew Dawson puttabrotnaði rétt fyrir Ólympíuleikana í París og hefði getað misst af leikunum.

Ástralski hokkíleikarinn Matthew Dawson puttabrotnaði rétt fyrir Ólympíuleikana í París og hefði getað misst af leikunum.

Hann vann silfurverðlaun á leikunum í Tókýó árið 2020 og ef hann hefði farið í aðgerð þá hefði hann líklegast misst af Ólympíuleikunum í ár en í staðinn valdi hann að láta fjarlægja baugfingurinn.

„Ég tók upplýsta ákvörðun með lýtalækninum, ekki bara til þess að fá tækifæri til þess að keppa á leikunum heldur líka lífið eftir þá,“ sagði Dawson.

mbl.is