Þvertekur fyrir að hafa beitt göldrum

Poppkúltúr | 24. júlí 2024

Þvertekur fyrir að hafa beitt göldrum

Kate Tomas, kærasta bandaríska leikarans Andrew Garfield, þvertekur fyrir að hafa beitt göldrum til að tæla leikarann. 

Þvertekur fyrir að hafa beitt göldrum

Poppkúltúr | 24. júlí 2024

Andrew Garfield og Kate Tomas.
Andrew Garfield og Kate Tomas. Samsett mynd

Kate Tomas, kærasta bandaríska leikarans Andrew Garfield, þvertekur fyrir að hafa beitt göldrum til að tæla leikarann. 

Kate Tomas, kærasta bandaríska leikarans Andrew Garfield, þvertekur fyrir að hafa beitt göldrum til að tæla leikarann. 

Tomas, sem starfar sem töfralæknir og norn, heldur regluleg námskeið í tælingum og er einnig með hlaðvarpsþáttinn The Friday Emails þar sem hún ræðir ýmis andleg málefni. 

Í nýjasta þætti hlaðvarpsins viðurkenndi Tomas að hafa neyðst til að taka námskeið sín úr sölu vegna ásakana um að hún hafi lagt álög á Garfield. Tomas segir galdra ekki spila rullu í sambandi hennar og Garfield en eins og segir í lagi Bubba Morthens, Við Gróttu: „Og hjartað hvíslar ástin er göldrótt“. 

Samband Garfield, 40 ára, og Tomas, 42 ára, er fremur nýtt af nálinni en parið sást njóta kvöldverðar á franska veitingastaðnum Zinqué í Malibu í apríl.

Garfield hef­ur reynt eft­ir fremsta megni að halda einka­lífi sínu fjarri sviðsljós­inu, en sam­band hans og leik­kon­unn­ar Emmu Stone vakti mikla at­hygli á sín­um tíma. Garfield og Stone, sem kynnt­ust við gerð kvik­mynd­ar­inn­ar The Amaz­ing Spi­derm­an, voru sam­an í fimm ár. Sam­bandi þeirra lauk 2015.

Leik­ar­inn hef­ur einnig verið orðaður við Ritu Ora og Phoe­be Dynevor.

mbl.is