Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, mun í dag funda í Hvíta húsinu í sitthvoru lagi með Joe Biden Bandaríkjaforseta og Kamölu Harris, varaforseta Bandaríkjanna. Fundirnir koma í kjölfar ávarps hans á Bandaríkjaþingi í gær.

Á fundunum í dag verður m.a. rætt um mögulegt vopnahlé á milli Ísraels og hryðjuverkasamtakanna Hamas.
Bandaríkin og Ísrael eru nánir bandamenn og hafa Bandaríkin veitt Ísrael bæði pólitískan og hernaðarlegan stuðning. Þrátt fyrir það þá hefur reynt á samband þjóðanna, meðal annars vegna strembins sambands Bidens og Netanjahús.
Biden vill ná fram vopnahléi sem fæli í sér lausn gíslanna áður en forsetatíð hans lýkur.
„Ég mun áfram vinna að því að binda enda á stríðið á Gasa, koma öllum gíslunum heim og tryggja frið og öryggi í miðausturlöndunum,“ sagði Biden í ávarpi sínu til þjóðarinnar í gær.
Biden og Netanjahú funda saman klukkan 17 að íslenskum tíma og munu í kjölfarið hitta fjölskyldur gísla sem Hamas tóku í hryðjuverkum sínum í Ísrael 7. október.
Klukkan 20.30 í kvöld að íslenskum tíma, mun Netanjahú svo funda með Kamölu Harris sem er væntanlegur forsetaframbjóðandi demókrata. Athygli vakti að Kamala Harris sótti ekki ávarpið eins og venjan er þegar báðar þingdeildir koma saman.
Á morgun er svo gert ráð fyrir því að hann muni funda með Donald Trump, forsetaframbjóðanda repúblikana, á Mar-A-Lago.
Netanjahú ávarpaði Bandaríkjaþing í gær. Hann hvatti þar til frekari samstöðu Bandaríkjanna og Ísraelsríkis og sagði að Ísrael hefði ekki í hyggju að festa rætur á Gasasvæðinu.
Þá skaut Netanjahú föstum skotum á Íran, sem og fólk sem hefur mótmælt Ísrael, sem hann sagði vera „nytsamir sakleysingjar Írans“.