Kamala Harris, varaforseti Bandaríkjanna og væntanlegur forsetaframbjóðandi demókrata, fordæmir harðlega tiltæki nokkra mótmælenda sem brenndu bandaríska fánann og bendluðu sig við hryðjuverkasamtökin Hamas í gær.

Mótmælin áttu sér stað nálægt þinghúsinu í höfuðborginni Washington þegar Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, flutti ávarp. Mótmælendur sáust meðal annars með fána hryðjuverkasamtakanna á mótmælunum
„Ég fordæmi alla einstaklinga sem bendla sig við hin hrottalegu hryðjuverkasamtök Hamas, sem hafa heitið því að tortíma Ísraelsríki og myrða gyðinga. Veggjakrot og orðræða til stuðnings Hamas er viðbjóðsleg og við eigum ekki að umbera það í okkar landi,“ skrifaði Harris í færslu á Twitter.
Hún sagði mótmælendur hafa verið með hatursfulla orðræðu og sagði verknað þeirra vera óþjóðrækinn.
„Ég fordæmi það að bandaríski fáninn sé brenndur. Fáninn er tákn um okkar helstu hugsjónir sem þjóð og táknar fyrirheit Bandaríkjanna,“ skrifaði hún.
Að lokum segir að hún styðji við rétt fólks til að mótmæla friðsamlega.
„En við skulum hafa það á hreinu: Gyðingaandúð, hatur og ofbeldi af öllu tagi á sér engan stað í okkar landi.“