Tónlistarmaðurinn Aron Can Gultekin er nýkominn heim frá Tékklandi, en hann birti í gærkvöldi skemmtilega myndaröð frá ferðinni á Instagram-reikningi sínum.

Myndaröðin innhélt meðal annars sjóðheita ræktarmynd af Aroni sem er í fantaformi enda duglegur að hreyfa sig og hugsa um heilsuna. Aron hefur sýnt frá æfingum sínum á Instagram, en hann er bæði duglegur að mæta í ræktina en líka að hlaupa.
Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Rúrik Gíslason, sem er ásamt Aroni meðlimur í strákabandinu IceGuys, var ekki lengi að skrifa ummæli við myndaröðina þar sem hann hrósaði Aroni í hástert, þá sérstaklega fyrir kviðvöðvana.
„10/10 fyrir caption. Ætla ekki að reyna að rate-a þetta greatest sixpack í sögu sixpack-a!“ skrifaði Rúrik undir myndaröðina – ekki amalegt hrós að fá!