10 hlutir sem þú þarft í útileguna um verslunarmannahelgina

Fatastíllinn | 26. júlí 2024

10 hlutir sem þú þarft í útileguna um verslunarmannahelgina

Ein mesta ferðahelgi landsmanna er framundan, verslunarmannahelgin, og því ekki vitlaust að byrja að plana hana tímanlega. Óskalista vikunnar prýða því tíu vörur sem henta sérstaklega vel í útileguna eða á útihátíðina!

10 hlutir sem þú þarft í útileguna um verslunarmannahelgina

Fatastíllinn | 26. júlí 2024

Allt sem þú þarft fyrir verslunarmannahelgina!
Allt sem þú þarft fyrir verslunarmannahelgina! Samsett mynd

Ein mesta ferðahelgi landsmanna er framundan, verslunarmannahelgin, og því ekki vitlaust að byrja að plana hana tímanlega. Óskalista vikunnar prýða því tíu vörur sem henta sérstaklega vel í útileguna eða á útihátíðina!

Ein mesta ferðahelgi landsmanna er framundan, verslunarmannahelgin, og því ekki vitlaust að byrja að plana hana tímanlega. Óskalista vikunnar prýða því tíu vörur sem henta sérstaklega vel í útileguna eða á útihátíðina!

Skynsöm og töff yfirhöfn!

Á Íslandi er allra veðra von og því kemur vatnsheldur fatnaður sér vel. Þessi jakki er frá 66°Norður og er töff hvernig sem viðrar!

Kría-jakki fæst hjá 66°Norður og kostar 61.000 krónur.
Kría-jakki fæst hjá 66°Norður og kostar 61.000 krónur. Skjáskot/Instagram

Útileguteppið!

Það er ómissandi að vera með hlýtt teppi í útilegunni. Þetta teppi ber einfaldlega heitið Útilega og hentar því sérstaklega vel um verslunarmannahelgina, en það er íslensk hönnun eftir Védísi Jónsdóttur.

Teppið Útilega eftir Védísi Jónsdóttur fæst hjá Knitknit og kostar …
Teppið Útilega eftir Védísi Jónsdóttur fæst hjá Knitknit og kostar 16.890 krónur. Ljósmynd/Knitknit.is

Létt og góð!

Hvort sem þú ætlar á útihátíð eða í útilegu er nauðsynlegt að vera með létta og góða tösku. Þessi er frá danska merkinu Sandqvist og er í fullkominni stærð fyrir það allra nauðsynlegasta.

Hliðartaska frá Sandqvist fæst hjá Mjöll og kostar 14.900 krónur.
Hliðartaska frá Sandqvist fæst hjá Mjöll og kostar 14.900 krónur. Ljósmynd/Mjoll.is

Staðalbúnaður!

Góð stígvél ættu að vera staðalbúnaður í allar útilegur og útihátíðir á Íslandi, enda fátt verra en að vera blautur í fæturna!

Stígvél frá Barbour fást hjá Boozt og kosta 14.249 krónur.
Stígvél frá Barbour fást hjá Boozt og kosta 14.249 krónur. Ljósmynd/Boozt.com

Ekki alveg úlpuveður!

Við höldum í vonina og reiknum með að þurfa ekki að taka þykku úlpuna út fyrir verslunarmannahelgina. Hins vegar er alltaf sniðugt að hafa með sér flott vesti sem hægt er að henda yfir sig þegar farið er að kólna á kvöldin!

Vesti frá Entire Studios fæst hjá Nebraska og kostar 59.990 …
Vesti frá Entire Studios fæst hjá Nebraska og kostar 59.990 krónur. Ljósmynd/Nebraska.is

Klassíkin!

Lopapeysan er klassísk flík til að taka með á útihátíðina eða í útileguna. Hún heldur á þér hita og svo er hún hrikalega smart!

Handprjónuð ullarpeysa fæst hjá Icewear og kostar 32.990 krónur.
Handprjónuð ullarpeysa fæst hjá Icewear og kostar 32.990 krónur. Skjáskot/Instagram

Lykilatriði!

Það má ekki gleyma húfunni yfir verslunarmannahelgina, enda getur hún gegnt mikilvægu hlutverki í útilegum og á útihátíðum þegar kemur að því að endast lengi úti! 

Húfa fæst hjá Magneu og kostar 9.900 krónur.
Húfa fæst hjá Magneu og kostar 9.900 krónur. Ljósmynd/Magneareykjavik.com

Stemningsgræjan!

Þú leggur ekki af stað í útilegu yfir verslunarmannahelgina án þess að vera með ferðahátalara í töskunni – svo einfalt er það!

Ferðahátalari frá Kreafunk fæst hjá Akkúrat og kostar 10.900 krónur.
Ferðahátalari frá Kreafunk fæst hjá Akkúrat og kostar 10.900 krónur. Ljósmynd/Akkurat.store

Þessi sem heldur heitu og köldu!

Gott ferðamál er ómissandi yfir verslunarhelgina. Þetta ferðamál er frá Kinto og er sérstaklega hannað fyrir útiveru og ferðalög, en það heldur drykkjum bæði heitum og köldum lengur.

Ferðamál frá Kinto fæst hjá Epal og kostar 9.700 krónur.
Ferðamál frá Kinto fæst hjá Epal og kostar 9.700 krónur. Ljósmynd/Epal.is

Ljómandi húð á mettíma!

Það er óþarfi að flækja húðrútínuna í útilegunni. Þetta krem er litalaust en fullkomnar samt sem áður húðina og veitir henni einstakan frísklegan ljóma.

Skin Hero Glow frá Erborian fæst hjá Beautybox og kostar …
Skin Hero Glow frá Erborian fæst hjá Beautybox og kostar frá 3.580 til 6.850 krónur. Ljósmynd/Beautybox.is
mbl.is