Það væsir sannarlega ekki um förðunarfræðinginn Heiði Ósk Eggertsdóttur og Davíð Rúnar Bjarnason, landsliðsþjálfara í hnefaleikum, en þau eru stödd í rómantísku ástarfríi í Split í Króatíu um þessar mundir.

Heiður Ósk og Davíð Rúnar eru nýtt par, en Smartland greindi frá því í síðasta mánuði að þau hefðu opinberað ástina á samfélagsmiðlum.
Parið hefur deilt ævintýralegum myndum frá ferðalagi sínu á Instagram, en þau fóru meðal annars í siglingu og heimsóttu bæinn Stomorska á eyjunni Solta í Króatíu þar sem þau nutu sólarinnar á kokteila- og strandbarnum Beach Club Afrika.
Heiður Ósk deildi einnig sjóðheitri kossamynd í sögu sinni (e. story) á Instagram, en á myndina skrifaði hún: „Lovelovelove you“ eða „elskaelskaelska þig“.