Ráð fyrir ferskustu handklæðin

Húsráð | 26. júlí 2024

Ráð fyrir ferskustu handklæðin

Allir elska hrein handklæði sem ilma vel en stundum vill festast vond lykt í handklæðum. Til að það komi ekki fúkkalykt af handklæðunum er mikilvægt að huga að nokkrum atriðum. Samkvæmt vefsíðu Mörthu Stewart þá eru þetta helstu atriðin sem skipta sköpun í umhirðu handklæða.

Ráð fyrir ferskustu handklæðin

Húsráð | 26. júlí 2024

Þú getur frískað upp á gömul handklæði í stað þess …
Þú getur frískað upp á gömul handklæði í stað þess að henda þeim út. mbl.is/White Away

Allir elska hrein handklæði sem ilma vel en stundum vill festast vond lykt í handklæðum. Til að það komi ekki fúkkalykt af handklæðunum er mikilvægt að huga að nokkrum atriðum. Samkvæmt vefsíðu Mörthu Stewart þá eru þetta helstu atriðin sem skipta sköpun í umhirðu handklæða.

Allir elska hrein handklæði sem ilma vel en stundum vill festast vond lykt í handklæðum. Til að það komi ekki fúkkalykt af handklæðunum er mikilvægt að huga að nokkrum atriðum. Samkvæmt vefsíðu Mörthu Stewart þá eru þetta helstu atriðin sem skipta sköpun í umhirðu handklæða.

1. Þvoið alltaf handklæðin reglulega á hæsta hita eða 90 gráður.

2. Forðist það að láta blaut eða rök handklæði liggja í hrúgu lengi t.d. í þvottakörfu eða á gólfi. Þannig mygla þau og vond lykt festist í þeim. Hengið alltaf blaut handklæði upp til þerris þar til þau rata í þvott.

3. Notið hæfilegt magn af þvottaefni. Hvorki of mikið né of lítið. Það er algengur misskilningur að meira magn af þvottaefni þrífi fötin betur. Þvert á móti getur of mikið magn af þvottaefni skilið eftir sig leifar og þvotturinn verður allur sápukenndur.

4. Gott er að sótthreinsa þvottavélina einu sinni í mánuði því það stoðar lítið að þvo þvott í vél sem er almennt óhrein. Gott er að láta vélina ganga tóma með slettu af klór.

mbl.is