Það var stuð og stemning í sumarveislu 66°Norður semk haldin var í verslun fyrirtækisins við Laugaveg 17. Tilefnið voru nýir bleikir og brúnir sjóstakkar frá fataframleiðandanum sem fóru í sölu og var mikil spenna í loftinu.

Söngkonan Jóhanna Guðrún Jónsdóttir vakti athygli þegar hún klæddist bleikum sjóstakki í myndbandi hennar fyrir Þjóðhátíðarlagið 2024, Töfrar, og biðu margir spenntir eftir að eignast slíkan stakk.
„Bleiku sjóstakkarnir seldust upp á tíu mínútum, ég hef ekki séð svona áður á Íslandi,“ segir Bryndís Björk Bergsdóttir hjá markaðsdeild 66°Norður. „Spennan var svo mikil að sjóstökkum var kastað til kúnna sem höfðu beðið lengi, en fyrsta fólk mætti í röð klukkan níu um morguninn,“ bætir hún við.
Tónlistarmaðurinn Daniil steig á svið í sumarveislunni og DJ Guðný Björk hélt uppi stuðinu. „Það var áþreifanleg spenna í loftinu yfir nýju litunum sem slógu heldur betur í gegn og hlökkum við til að sjá myndir af fólki klæðast sjóstökkum á öllum helstu útihátíðum landsins,“ segir Bryndís Björk að lokum.