Þeir sem eru komnir með leið á hinni hefðbundnu rabarbaraböku ættu að prófa rabarbarapavlovu. Pavlovan krefst meiri tíma en einföld baka í eldföstu móti en á sama tíma er eitthvað aðeins meira grand við pavlovu.
Þeir sem eru komnir með leið á hinni hefðbundnu rabarbaraböku ættu að prófa rabarbarapavlovu. Pavlovan krefst meiri tíma en einföld baka í eldföstu móti en á sama tíma er eitthvað aðeins meira grand við pavlovu.
Það er gamalt og gott ráð að nýta það sem til er í garðinum og því gaman að prófa sig áfram með rabarbara sem vex víða eins og illgresi. Í þessari uppskrift eru jarðarber notuð með til þess að gefa sætu á móti súrum rabarbaranum.
Pavlova með rabarbara og jarðarberjum
Botn
- 8 stk. eggjahvítur
- 500 g sykur
- 1 ½ tsk. edik
- ½ tsk. vanilludropar
- ½ tsk. salt
Rjómakrem
- 2 dl rjómi
- 3 msk. flórsykur
- ½ tsk. vanilludropa eða vanillusykur
Rabarbara og jarðarberjakrem
- 800 g rabarbari
- 3 dl sykur
- 1/2 dl vatn
- 250 g jarðaber
Aðferð
- Byrjið á því að hita ofninn í 100°C hita.
- Þeytið eggjahvíturnar vel.
- Bætið við sykrinum hægt og rólega saman við, ásamt ediki, salti og vanilludropum.
- Þeytið þar til sykurinn er vel uppleystur og marengsinn er orðinn stífur og fallegur.
- Smyrjið marengsinum á bökunarpappír á plötu, mótið tvo kringlótta botna úr marengsnum. Megið líka gera einn botn, valkvætt.
- Bakið við 100°C hita í 2 klukkustundir.
- Slökkvið þá á ofninum og látið kólna í honum.
- Þegar marengsinn hefur kólnað þeytið þá rjóma og blandið flórsykri og vanilludropum eða vanillusykri saman við.
- Setjið rjómablönduna ofan á marengsinn.
- Skerið rabarbara í bita og sjóðið með vatni og sykri. Eftir að rabarbarinn hefur náð suðu látið malla í 10 til 15 mínútur eða þangað til rabarbarablandan er orðin mjúk. Kælið og blandið helming jarðaberja út í.
- Hellið blöndunni ofan á kökuna.
- Notið hinn helminginn af jarðarberjunum til að skreyta kökuna.