Söng- og leikkonan Lady Gaga kallaði kærasta sinn, viðskiptamanninn Michael Polansky, unnusta sinn á meðan hún fylgdist með sundkeppni á Ólympíuleikunum í París í gær.

„Þetta er unnusti minn Michael,“ sagði hún við forsætisráðherra Frakklands, Gabriel Attal, í myndbandi sem birtist á samfélagsmiðlinum TikTok.
Hún kynnti sinn heittelskaða þegar forsætisráðherrann hrósaði Gaga fyrir stórkostlegt söngatriði á opnunarhátíð Ólympíuleikana sem fór fram á föstudag.
Gaga hefur enn ekki staðfest það opinberlega hvort að þau Polansky eru trúlofuð.
Sögusagnir um að Gaga sé trúlofuð hafa verið háværar síðan hún sást skarta hring með stórum demanti í apríl síðastliðnum. Hún og Polansky hafa verið saman frá árinu 2019 og haldið sambandi sínu að mestu frá sviðsljósinu. Í viðtali árið 2021 lýsti hún því hversu yfir sig ástfangin hún væri af Polansky og kallaði hann „allt lífið sitt“.
Söngkonan var áður trúlofuð leikaranum Taylor Kinney á árunum 2015 til 2016. Síðar trúlofaðist hún umboðsmanninum Christian Carino en þau hættu saman árið 2019.