Roy Cooper, ríkisstjóri Norður-Karólínu, sækist ekki eftir því að verða varaforsetaefni Kamölu Harris, varaforseta Bandaríkjanna sem sækist eftir því að verða forsetaframbjóðandi demókrata.

Þessu greinir hann frá í færslu á samfélagsmiðlinum X.
Cooper var á meðal þeirra sem stjórnmálaspekingar töldu líklegan til að verða fyrir valinu hjá Harris.
Í yfirlýsingu sinni segir Cooper að hann styðji framboð Harris. Það sé heiður að hann hafi verið íhugaður sem varaforsetaefni. Hins vegar sé þetta hvorki rétti tíminn fyrir Norður-Karólínu né hann sjálfan til að fara í framboð með Harris.