Runaway Bride fagnar 25 ára útgáfuafmæli

Brúðkaup | 31. júlí 2024

Runaway Bride fagnar 25 ára útgáfuafmæli

Í ár eru liðin 25 ár frá því að kvikmyndin Runaway Bride var frumsýnd í kvikmyndahúsum víðs vegar um heim. Stjörnuleikararnir Julia Roberts og Richard Gere fóru með aðalhlutverkin í rómantísku gamanmyndinni sem var leikstýrt af Gerry Marshall, þeim sama og leikstýrði leikurunum í kvikmyndinni Pretty Woman níu árum áður.

Runaway Bride fagnar 25 ára útgáfuafmæli

Brúðkaup | 31. júlí 2024

Samsett mynd

Í ár eru liðin 25 ár frá því að kvikmyndin Runaway Bride var frumsýnd í kvikmyndahúsum víðs vegar um heim. Stjörnuleikararnir Julia Roberts og Richard Gere fóru með aðalhlutverkin í rómantísku gamanmyndinni sem var leikstýrt af Gerry Marshall, þeim sama og leikstýrði leikurunum í kvikmyndinni Pretty Woman níu árum áður.

Í ár eru liðin 25 ár frá því að kvikmyndin Runaway Bride var frumsýnd í kvikmyndahúsum víðs vegar um heim. Stjörnuleikararnir Julia Roberts og Richard Gere fóru með aðalhlutverkin í rómantísku gamanmyndinni sem var leikstýrt af Gerry Marshall, þeim sama og leikstýrði leikurunum í kvikmyndinni Pretty Woman níu árum áður.

Runaway Bride fjallar um brúði, leikin af Roberts, sem hefur í þrígang yfirgefið brúðguma sína við altarið. Gere leikur blaðamann sem er sendur út af örkinni til að kynna sér málið nánar. Karakterar Roberts og Gere, Maggie Carpenter og Ike Graham, enda á að falla fyrir hvort öðru og ganga að lokum í hjónaband.

Einn fallegasti brúðarkjóll sem sést hefur á skjánum

Kjóllinn sem Roberts klæddist í lokasenu kvikmyndarinnar er talinn einn fallegasti brúðarkjóll sem sést hefur á skjánum og hefur reglulega ratað inn á lista yfir ógleymanlega og tímalausa brúðarkjóla.

Búningahönnuður Runaway Bride var Albert Wolsky og hannaði hann alla brúðarkjólana sem Roberts klæddist, fyrir utan þann sem hún klæddist í lokasenu kvikmyndarinnar. Þann kjól fann Wolsky fyrir hreina tilviljun í verslun Saks Fifth Avenue í New York. Brúðarkjóllinn var hannaður af eþíópíska brúðarkjólahönnuðinum Amsale Aberra.

Í tilefni af 25 ára útgáfuafmæli Runaway Bride ætlum við að rifja upp brúðarkjóla Maggie Carpenter.

Kjólavalið var skemmtilegt og ólíkt.
Kjólavalið var skemmtilegt og ólíkt. Skjáskot/IMDb
Karakter Roberts flúði eitt brúðkaup á hestbaki.
Karakter Roberts flúði eitt brúðkaup á hestbaki. Skjáskot/IMDb
Hinn svokallaði „bjöllukjóll“ heillaði marga.
Hinn svokallaði „bjöllukjóll“ heillaði marga. Skjáskot/IMDb
Brúðarkjóllinn sem Roberts klæddist í lokasenu kvikmyndarinnar er í uppáhaldi …
Brúðarkjóllinn sem Roberts klæddist í lokasenu kvikmyndarinnar er í uppáhaldi flestra aðdáenda Runaway Bride. Skjáskot/IMDb






mbl.is