Tónlistarmaðurinn Bruce Springsteen er kominn í verðskuldað frí eftir heljarinnar tónleikaferðalag um Evrópu. Rokkgoðið sjálft flaug rakleiðis frá Lundúnum til St. Tropez í Frakklandi eftir tvenna uppselda tónleika á Wembley í síðustu viku.

Springsteen var myndaður ásamt félaga sínum, leikstjóranum Steven Spielberg, um borð í snekkju í St. Tropez á fimmtudag. Strandbærinn er þekktur fyrir að vera sumarleyfisstaður ríka og fræga fólksins.
Félagarnir nutu góðra stunda í blíðviðrinu, þeyttust um sjóinn á sæþotum og nældu sér í lit á kroppinn.
Springsteen, 74 ára, er í hörkuformi og hikaði ekki við að fara úr að ofan til að fá lit á axlirnar og bringuna. Spielberg, 77 ára, kaus að njóta sólarinnar með varkárni og hélt sig í fötunum.
Eiginkonur kappanna, Patti Scialfa og Kate Capshaw, voru fjarri góðu gamni að þessu sinni.