Finnst eins og verið sé að gera gys að þjóðinni

Dagmál | 3. ágúst 2024

Finnst eins og verið sé að gera gys að þjóðinni

Guðrún Haf­steins­dótt­ir dóms­málaráðherra skil­ur vel af hverju nafna­breyt­ing af­brota­manns kem­ur fólki spánskt fyr­ir sjón­ir. Sjálfri finnst henni eins og verið sé að gera gys að þjóðinni, þó hún vilji ekki fullyrða um hvort að það hafi verið tilgangurinn.

Í nýj­asta þætti Dag­mála er hún spurð út í nafna­breyt­ingu af­brota­manns­ins Mohamad Kourani, sem breytti kenninafn­inu sínu og gengur nú undir nafninu Mohamad Th. Jó­hann­es­son, og hvort hann sé að van­v­irða þjóðina með því að taka upp eft­ir­nafn þáver­andi for­seta.

„Ég tel þetta afar óheppilegt“

„Hvort að viðkomandi einstaklingur hafi verið að gera gys að þjóðinni skal ég ekki fullyrða um. Ég tel þetta afar óheppi­legt, að viðkom­andi hafi nýtt sér þessa frjálsu lög­gjöf sem við höf­um hér á landi – fyr­ir borg­ara þessa lands – til þess að breyta nafni sínu,“ segir Guðrún og bætir við:

„Ég skil það mjög vel að fólki komi þetta spánskt fyr­ir sjón­ir og vita­skuld finnst manni eins og það sé verið að gera gys að þjóðinni þegar ein­hver tek­ur upp eft­ir­nafn for­seta okk­ar – far­sæls for­seta á Bessa­stöðum. Þannig að ég get gagn­rýnt það.“

Ekki ætlað afbrotamönnum

Hún segir að ákvæði í lögum um mannanöfn, sem varðar breytingu á nafni, hafi verið ætlað fyrir almenna borgara sem bera sama nafn og afbrotamenn og líða fyrir það. Ekki fyrir afbrotamenn.

„Þessi lög voru ekki sett til þess að glæpamenn gætu breytt nafni sínu þannig þeir gætu betur falið sig í íslensku samfélagi og ég gagnrýni það mjög. Þess vegna sendum við í dómsmálaráðuneytinu fyrirspurn til Þjóðskrár hvernig þau væru að beita þessa undanþáguákvæði. Og það barst svar til ráðuneytisins fyrir helgi og við höfum verið að ígrunda það og skoða það svar nánar,“ segir Guðrún.

Er­lend­ir rík­is­borg­ar­ar sem búa á Íslandi geta sótt um nafn­breyt­ingu á grund­velli laga um manna­nöfn.

Aft­ur á móti lúta kenn­i­nöfn, þ.e. nöfn eins og Jóns­dótt­ir eða Guðrún­arson, strang­ari skil­yrðum og þarf að sýna fram á að ætt­ingi í bein­an legg hafi haft nafnið skráð í þjóðskrá við gildis­töku manna­nafna­laga haustið 1991.

mbl.is