Froðufjör í sól og blíðu á Siglufirði

Verslunarmannahelgin | 4. ágúst 2024

Froðufjör í sól og blíðu á Siglufirði

„Það er slökkvilið Fjallabyggðar sem að sér um þetta og þetta er í mjög góðu samstarfi við þá og þeir leggja þetta til hátíðarinnar að halda þetta froðufjör,“ segir Þórarinn Hannesson, einn viðburðarhaldara Síldarævintýrsins á Siglufirði, en þar byrjaði dagskrá dagsins á froðupartýi.

Froðufjör í sól og blíðu á Siglufirði

Verslunarmannahelgin | 4. ágúst 2024

Dagskrá Síldarævintýrsins hófst á froðufjöri í dag.
Dagskrá Síldarævintýrsins hófst á froðufjöri í dag. mbl.is/Geir

„Það er slökkvilið Fjallabyggðar sem að sér um þetta og þetta er í mjög góðu samstarfi við þá og þeir leggja þetta til hátíðarinnar að halda þetta froðufjör,“ segir Þórarinn Hannesson, einn viðburðarhaldara Síldarævintýrsins á Siglufirði, en þar byrjaði dagskrá dagsins á froðupartýi.

„Það er slökkvilið Fjallabyggðar sem að sér um þetta og þetta er í mjög góðu samstarfi við þá og þeir leggja þetta til hátíðarinnar að halda þetta froðufjör,“ segir Þórarinn Hannesson, einn viðburðarhaldara Síldarævintýrsins á Siglufirði, en þar byrjaði dagskrá dagsins á froðupartýi.

Nefnir Þórarinn í samtali við mbl.is að froðufjörið sé búið að vera partur af dagskrá hátíðarinnar síðan það var haldið á hátíðinni árið 2019.

Eins og sjá má á myndum er þar mikið fjör og ekki skemmir veðrið fyrir líkt og Þórarinn staðfestir. „Hér er bara sól og blíða. Gæti varla verið betra.“

Slökkvulið Fjallabyggðar sér um að halda froðufjörið sem hefur verið …
Slökkvulið Fjallabyggðar sér um að halda froðufjörið sem hefur verið undanfarin ár. mbl.is/Geir

Allir brosandi og kátir

Hvernig hefur helgin gengið á Siglufirði?

„Hún hefur gengið alveg frábærlega. Allt bara gengið eins og átti að gera. Veðrið bara alveg skaplegt. Smá rigning og vindur á köflum en það kom svona á réttum tímum. Það hefur verið yfirstandandi dagskrá hérna alveg síðan á fimmtudag og fullur bær af fólki og allir brosandi og kátir.“

Segir Þórarinn að dagskrá dagsins hafi byrjað með froðufjörinu fyrir börn og svo séu hoppukastalar inni í íþróttahúsinu.

„Svo verður lifandi tónlist í miðbænum og mikið líf í kringum Síldarminjasafnið þar sem að opnaði nýtt kaffihús í gær. Virkilega flott,“ segir Þórarinn og bætir við:

„Svo er bara líf hérna í öðrum söfnum bæjarins og sýningar í gangi og bara mjög gott mannlíf.“

Ekki var hægt að kvarta yfir veðri en eins og …
Ekki var hægt að kvarta yfir veðri en eins og sjá má var sumarblíða á Siglufirði í dag. mbl.is/Geir

Þyrla Landhelgisgæslunnar leit við

Nefnir þá viðburðarhaldarinn að þyrla Landhelgisgæslunnar hafi kíkt í heimsókn í hádeginu.

„Það var svona smá rúsína í pylsuendanum í morgun. Við fengum tilkynningu um það að þyrla Landhelgisgæslunnar gæti komið og sýnt björgun hjá okkur. Birtust allt í einu klukkan hálf 12.“

Gaf Þórarinn mbl.is góðfúslegt leyfi til að birta myndir af björguninni.

Þyrla Landhelgisgæslunnar leit við á hátíðinni í dag og sýndi …
Þyrla Landhelgisgæslunnar leit við á hátíðinni í dag og sýndi björgun. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is