Aldrei verið ástfangnari af David Beckham

Poppkúltúr | 6. ágúst 2024

Victoria Beckham, fatahönnuður og fyrrverandi Kryddpía, er ástfangnari sem aldrei fyrr. Frá þessu greinir hún í viðtali sem birtist á síðum ástralska Vogue nú á dögunum. Engin önnur en Nicole Kidman ræddi við Beckham fyrir hönd tískutímaritsins.

David og Victoría Beckham eru glæsilegt par.
David og Victoría Beckham eru glæsilegt par. Skjáskot/Instagram

Victoria Beckham, fatahönnuður og fyrrverandi Kryddpía, er ástfangnari sem aldrei fyrr. Frá þessu greinir hún í viðtali sem birtist á síðum ástralska Vogue nú á dögunum. Engin önnur en Nicole Kidman ræddi við Beckham fyrir hönd tískutímaritsins.

Victoria Beckham, fatahönnuður og fyrrverandi Kryddpía, er ástfangnari sem aldrei fyrr. Frá þessu greinir hún í viðtali sem birtist á síðum ástralska Vogue nú á dögunum. Engin önnur en Nicole Kidman ræddi við Beckham fyrir hönd tískutímaritsins.

„Ég elska að verja tíma með eiginmanni mínum. David Beckham er mjög fyndinn. Ég á eiginmann sem ég er yfir mig ástfangin af,“ sagði Beckham er hún var spurð út í hjónaband hennar og fyrrverandi knattspyrnumannsins.

Beckham-hjónin fögnuðu 25 ára brúðkaupsafmæli sínu í byrjun júlí. Þau gengu í það heil­aga við glæsi­lega og íburðar­mikla at­höfn þann 4. júlí 1999. 

Uppljóstraði leyndarmálinu að farsælu hjónabandi

Beckham gaf Kidman örlitla innsýn inn í hjónalífið og sagði lykilinn að farsælu hjónabandi þeirra vera gleði, hlátur og stuðning.

„Í gærkvöldi sagði ég við hann [David] og börnin: „Eftir 25 ár þá elska ég pabba ykkar, ég styð hann í einu og öllu og vil að hann sé ávallt besta útgáfan af sjálfum sér.“ 

mbl.is