Tvö ár eru liðin frá því að tónlistarmaðurinn Gauti Þeyr Másson, best þekktur undir listamannsnafninu Emmsjé Gauti, og eiginkona hans Jovana Schally gengu í það heilaga við fallega athöfn.

Emmsjé Gauti birti fallega myndaseríu á Instagram-reikningi sínum í morgun í tilefni af brúðkaupsafmæli hjónanna. Annað brúðkaupsafmælið er helgað bómull og kallast því bómullarbrúðkaup.
„Gift í 2 ár. Good times. Volim te,“ skrifaði tónlistarmaðurinn við færsluna. Volim te þýðir „ég elska þig“ á bæði króatísku og serbnesku.
Emmsjé Gauti og Jovana voru gefin saman í Fríkirkjunni í Reykjavík þann 6. ágúst 2022. Parið hnaut um hvort annað 2016 og trúlofaði sig þremur árum síðar. Hjónin eiga samtals þrjú börn.