Skipuleggjendur heimsleikanna í Crossfit, CrossFit Games, hafa staðfest að keppandinn sem lést í gær sé hinn serbneski Lazar Ðukic.

„Við erum harmi slegin yfir andláti Lazar Ðukic. Hjörtu okkar og hugur eru hjá fjölskyldu hans, vinum og félögum hans úr íþróttinni,“ segir í Instagram-færslu CrossFit Games.
Ðukic skilaði sér ekki úr fyrstu keppnisgrein leikanna í Texas í gær, sem var 5,6 kílómetra hlaup og 800 metra sund undir berum himni, og hófst mikil leit á vettvangi.
Búið er að fjarlæga streymi af keppninni af YouTube þar sem sást síðast til Ðukic. Á upptökum sást vel að Ðukic átti 100 metra eftir að marklínunni þegar hann byrjaði að eiga erfitt með sundtök.
Stuðningsmenn Ðukic hafa stofnað til söfnunar fyrir fjölskyldu hans og hafa yfir 264 þúsund bandaríkjadalir safnast eða um 37 milljónir króna.