Tónlistarmaðurinn Gauti Þeyr Másson, betur þekktur undir sviðsnafninu Emmsjé Gauti, hefur verið án áfengis í ár.

Í tilefni þess birti hann færslu á Instagram-reikningi sínum þar sem hann sendi ást og hlýju til fylgjenda sinna.
„Í dag eru fimm ár síðan ég hætti að drekka. Fyrir mér snýst þetta um að láta sér líða vel, vinna í hlutunum og reyna að vera besta útgáfan af sjálfum sér. Ást til ykkar allra,“ skrifaði hann í færslunni og birti mynd af sér á Ingólfstorgi í miðbæ Reykjavíkur.
Tónlistarmaðurinn opnaði sig í einlægu viðtali við blaðamann Morgunblaðsins í desember 2023 þar sem hann ræddi meðal annars um ákvörðunina að hætta að drekka.
„Mér hefur liðið alls konar, en lífið breyttist mjög mikið. Ég sit miklu öruggari í sjálfum mér. Líkamlegir kvillar, eins og kvef og magaverkir, hurfu. Andlega hliðin fór blússandi hátt upp, en það tók líka við sjálfskoðun og það er ekkert auðvelt. Þannig að þetta hefur verið alls konar en ég sé ekki eftir þeirri ákvörðun að hætta að drekka og mig langar ekki í áfengi,“ sagði hann í viðtalinu.
Smartland óskar honum til hamingju með áfangann!