Hljómsveitin Skítamórall hefur sent frá sér nýja útgáfu af laginu Farin þar sem Íslendingar eru hvattir til að hætta að vera stanslaust að svekkja sig á veðrinu, taka málin í eigin hendur og skella sér einfaldlega í frí í sólina. Lagið kemur út í nýrri útgáfu í samstarfi við flugfélagið Play.

Skítamórall er ein ástsælasta hljómsveit landsins og er lagið Farin sem kom út árið 1998 eitt vinsælasta lag sveitarinnar og einskonar einkennislag aldamótakynslóðarinnar.
Einar Bárðarson, höfundur lagsins Farin, er einn þeirra sem hefur látið veðrið fara óhóflega í skapið á sér. Einn daginn starði hann á regnbarða rúðuna og hugsaði með sér: Það er bara skítamórall í kortunum… af hverju ertu ekki farinn?
„Þannig kviknaði þessi hugmynd að gera nýja útgáfu af laginu og syngja: „Ert ekki farin, ert ekki farin ennþá?,“ segir Einar í tilkynningu. Hann hafði samband við félaga sína í Skítamóral sem höfðu allir upplifað svipaðar tilfinningar þetta sumarið og tóku strax vel í hugmyndina.
Úr varð ný útgáfa af Farin, vinsælasta lagi hljómsveitarinnar, með nýjum texta. Textann samdi Bragi Valdimar textasmiður upp úr upprunalega textanum. Lagið verður meðal annars notað í auglýsingaherferð Play þar sem Íslendingar eru hvattir til að gera eitthvað í málunum í staðinn fyrir að svekkja sig á veðrinu.
„Þetta er létt framtak hjá okkur félögunum til að reyna að létta aðeins lund landsmanna í gegnum þetta tíðarfar. Sérstaklega af því ég stóð sjálfan mig að því að svekkja mig um of á þessu áður en ég áttaði mig á því að maður getur hreinlega bara gert eitthvað í málunum og gert það besta úr þessu,“ segir Einar að lokum í tilkynningunni.