Eingöngu öflugir kvenleiðtogar í matreiðslu eru í forystuhlutverki á MATEY 2024 sem haldin verður í Vestmannaeyjum í haust, 5. til 7. september næstkomandi, með pomp og prakt. Þetta er í þriðja skiptið sem matarhátíðin MATEY er haldin en síðustu hátíðir slógu í gegn og færri komust að en vildu þegar koma að því að bóka borð á veitingastaðina þar gestakokkarnir sýndu listir sínar.

Hér má sjá myndskeið frá fyrstu hátíðinni.
„Við erum stolt af því að fá alþjóðlega kvenleiðtoga í matreiðslu í hlutverk gestakokka á MATEY 2024. Þetta árið eru eingöngu kvenkyns gestakokkar sem koma víða að,“ segir Frosti Gíslason verkefnastjóri hátíðarinnar.
Gestakokkarnir í ár verða þrjá konur sem eru með bestu matreiðslumönnum í heimi sem koma frá þremur löndum. Þettu eru þær:
Vestmannaeyjar eru komnar á heimskort matgæðinga og öllum er boðið að koma og taka þátt í sjávarréttahátíðinni MATEY sem haldin verður í þriðja skipti eins og áður sagði. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá í tengslum við hátíðina og samfélagið leggst allt á eitt til að gera upplifunina sem innihaldsríkasta.
„Veitingastaðir, fiskframleiðendur og þjónustuaðilar í sjávarsamfélaginu Vestmannaeyjum taka höndum saman og vekja athygli á menningararfleifðinni og fjölbreytta fiskinum sem framleiddur er í Eyjum og bjóða upp margvíslega töfrandi rétti úr frábæru hráefni úr Eyjum,“ segir Frosti og bætir við að samhliða því verði boðið upp á frábæran mat úr staðbundnu hráefni úr Eyjum á veitingastöðum bæjarins þá verður boðið upp á áhugaverða viðburði á hátíðinni.
Fyrirtæki í sjávarútveginum og tengdum greinum gefa gestum tækifæri að fá innsýn í starfsemina og kynnast hvernig bláa hagkerfið tengist saman þannig að til verður dýrindis matur á diskum gesta sjávarréttahátíðarinnar á hinum fjölskrúðugu fjölskyldureknu veitingastöðum Vestmannaeyja.
Vestmannaeyjar eru einn aðal mataráfangastaður Íslands og þar eru nú fjöldi veitingastaða sem bjóða upp á staðbundna matargerð með staðbundnu hráefni. Mataráfangastaðurinn Vestmannaeyjar voru tilnefndar til norrænu matarverðlaunanna Emblu 2021. Á hátíðinni kynnist fólk menningunni og sögu matarins með nokkru af besta matreiðslufólki Norðurlandanna.
Aðspurður segir Frosti að á hátíðinni verði í boðið fjölmargar útfærslur af fiski veiddum í kringum Eyjarnar og framleiddum hjá hinum öflugu fiskvinnslum í Eyjum og matvælaframleiðendum eins og t.d. Ísfélaginu, VSV, Grími kokki, Marhólmum og Iðunni Seafood svo fátt sé nefnt.
Veitingastaðirnir í Eyjum Gott, Slippurinn og Einsi kaldi munu bjóða upp á margrétta sérseðla ásamt nokkrum af bestu matreiðslumönnum í heimi sem taka þátt í hátíðinni sem gestakokkar. Á Næs, Tanganum, Kránni, Sælandi, Pítsugerðinni verða í boði sérréttir og Brothers Brewery bjóða upp á sérlagaðan bjór í tilefni hátíðarinnar.
„Nú er enn ein frábær ástæða til þess að fara til veitingastaðina í Eyjum og njóta einstakrar matarupplifunar, því Vestmannaeyjar eru jú alltaf góð hugmynd,“ segir Frosti og brosir breitt.