Sælkeraskyrréttur í morgunsárið

Uppskriftir | 15. ágúst 2024

Sælkeraskyrréttur í morgunsárið

Það er gott að fá sér skyr í morgunmat en það má líka gera vel við sig stundum og fá sér sælkeraskyrrétt. Þessi uppskrift kemur úr smiðju Helenu Gunnarsdóttur hjá Eldhúsperlum og birtist á uppskriftavefnum Gott í matinn en hún kallar þetta skyrdesert. Það má auðvitað líka fá sér þennan í eftirrétt og njóta, enda er þessi sætur, það gerir púðursykurinn. Svo er svo gott að bæta smá súkkulaði við. Súkkulaði gerir allt betra.

Sælkeraskyrréttur í morgunsárið

Uppskriftir | 15. ágúst 2024

Íslenska skyrið er ávallt jafn gott og hér er skyrréttur …
Íslenska skyrið er ávallt jafn gott og hér er skyrréttur í sparibúning fyrir þá sem vija gera vel við sig. Ljósmynd/Helena Gunnarsdóttir

Það er gott að fá sér skyr í morgunmat en það má líka gera vel við sig stundum og fá sér sælkeraskyrrétt. Þessi uppskrift kemur úr smiðju Helenu Gunnarsdóttur hjá Eldhúsperlum og birtist á uppskriftavefnum Gott í matinn en hún kallar þetta skyrdesert. Það má auðvitað líka fá sér þennan í eftirrétt og njóta, enda er þessi sætur, það gerir púðursykurinn. Svo er svo gott að bæta smá súkkulaði við. Súkkulaði gerir allt betra.

Það er gott að fá sér skyr í morgunmat en það má líka gera vel við sig stundum og fá sér sælkeraskyrrétt. Þessi uppskrift kemur úr smiðju Helenu Gunnarsdóttur hjá Eldhúsperlum og birtist á uppskriftavefnum Gott í matinn en hún kallar þetta skyrdesert. Það má auðvitað líka fá sér þennan í eftirrétt og njóta, enda er þessi sætur, það gerir púðursykurinn. Svo er svo gott að bæta smá súkkulaði við. Súkkulaði gerir allt betra.

Sælkeraskyrréttur

  • 1 llítil dós skyr hreint
  • púðursykur eftir smekk
  • bláber eftir smekk
  • granóla eða hnetur eftir smekk
  • karamellusósa að eigin val og magn eftir smekk

Aðferð:

  1. Setjið smá púðursykur í botn á litlum glösum.
  2. Hrærið ögn af púðursykri saman við hreint skyr eða setjið til skiptis hreint skyr og smá púðursykur svo það verði lagskipt.
  3. Toppið með bláberjum, granóla og karamellusósu.
  4. Ef vill er líka hægt að setja smá af súkkulaðidropum ofan á, til dæmis 70% súkkulaðidropa frá Kaju.
mbl.is